21. janúar 2015

Fasteignagjöld fyrir árið 2015

Álagningarseðlar vegna fasteignagjalda fyrir árið 2015 eru einungis sendir til eldri borgara 67 ára og eldri og fyrirtækja, aðrir fá álagningaseðilinn birtan rafrænt á island.is  á næstu dögum. 
 Hægt er að nálgast álagningarseðilinn inn hjá www.island.is   á  „mínar síður“ 

Til að skrá sig inn  á island.is er byrjað á því að fara inn á mínar síður.  Þar er val um innskráningu  með rafrænu skilríki, skilríki í síma eða íslykli sem sótt er um á vefsíðunni http://www.island.is/islykill.   Álagningaseðilinn má finna undir linknum pósthólf.

Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur af gjöldunum ef greitt er fyrir föstudaginn 6. febrúar n.k.  Þeir sem ætla að staðgreiða vinsamlegast greiðið inn á reikning í Sparisjóði Vestmannaeyja nr. 1167-26-90 kt. 690269-0159. Aðrar upplýsingar vegna fasteignagjaldanna eru veittar í þjónustuveri Ráðhússins í  síma 488-2000.

Eldri borgarar fæddir árið 1945 og fyrr þurfa að tilkynna til þjónustuvers Ráðhúss hvort þeir hyggist nýta sér niðurfellingu á fasteignaskatti.  Bréf þess efnis mun fylgja útsendum álagningaseðli og þarf að skila því til þjónustuvers Ráðhússins fyrir 6. febrúar n.k. 


Jafnlaunavottun Learncove