Fágætissalur opnaður í Safnahúsinu
Dagskráin hefst í Ráðhúsi Vestmannaeyja sunnudaginn 18. maí kl. 13:30
Á safnadeginum 18. maí 2025, verður nýr og sérútbúinn fágætissalur opnaður í Safnahúsi Vestmannaeyja. Þar verður eitt merkilegasta fágætisbókasafn landsins opnað almenningi en uppistaðan í því er um 1.500 bækur sem Ágúst Einarsson, fyrrverandi prófessor og rektor á Bifröst hefur gefið Bókasafni Vestmannaeyja.
- Þar verður meðal annars að finna allar útgáfur Biblíunnar frá Guðbrandsbiblíu (1584), Þorláksbiblíu (1644) og Steinsbiblíu (1728) að telja. Elsta bókin í safninu er vögguprent, frá 1498.
- Þá verða einnig í fágætissalnum 37 málverk eftir Jóhannes Kjarval en Vestmannaeyjabær mun eiga eitt stærsta safn Kjarvalsverka sem loksins verða gerð aðgengileg á varanlegri sýningu.
- Verk eftir Júlíönu Sveinsdóttur prýða veggi sérstaks átthagarýmis með rösklega 2.000 bókum og blöðum, auk Íslandskorta frá um 1570.
Athöfnin hefst kl. 13:30 í Ráðhúsi Vestmannaeyja, þar sem flutt verða stutt ávörp en að því loknu verður gengið yfir í Safnahúsið þar sem menningarmálaráðherra, herra Logi Einarsson opnar fágætissalinn formlega. Í framhaldi opna síðan biskup Íslands frú Guðrún Karls Helgudóttir og dómsmálaráðherra frú Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Biblíusýninguna.
Verið öll hjartanlega velkomin á opnunina.