13. mars 2023

Eygló ehf opnar fyrir sölu inn á ljósleiðaranet sitt

Eygló ehf, hefur sent þeim fjarskiptafélögum á heildsölumarkaði sem óskað hafa eftir því að fá að selja inn á kerfi félagsins, fyrsta listann yfir þau heimili í Vestmannaeyjum sem eru klár í að tengjast ljósleiðarakerfi Eyglóar.

Það eru Dverghamar 15 - 41 sem koma fyrst inn á kerfið.

Eygló ehf. mun reka ljósleiðarann sjálfann sem er grunnstoð kerfisins en fjarskiptafélögin koma með þann búnað sem til þarf.  

Sala inn á kerfið er í höndum þeirra þjónustuveitna sem selja inn á kerfi Mílu og Ljósleiðarans (Gagnaveitan).  Einnig er Tölvun ehf í Vestmannaeyjum komið inn með sinn búnað.

Íbúar á Dverghamri 15 - 41 geta nú haft samband við sinn þjónustuaðila og óskað eftir uppfærslu í ljósleiðaratengingu.

Rétt er að taka það fram að Eygló ehf. sinnir einungis þessum þremur fjarskiptafélögum sem samið hafa við félagið.  Öll notendaþjónusta og sala er í höndum fjarksiptafélaga á endursölumarkaði.