20. október 2011

Deiliskipulagstillaga sunnan við Hraunbúðir

Bæjarstjórn Vestmannaeyja auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi skv. skipulagslögun nr. 123/2010, en um er að ræða tillögu um þjónustu- og íbúðarsvæði aldraðra, sunnan við Hraunbúðir.  

 

Skipulagssvæði sem er 5.4 ha, nær til lóðar umhverfis Dvalarheimilið Hraunbúðir og sunnan við það og næsta nágrenni sem er austan við íbúðir aldraða við Eyjahraun og Kleifahraun. Skipulagið gerir ráð fyrir lágreistri einnar hæðar byggð, fyrir 60 ára og eldri í fjölbýlis-, par- og raðhúsum. Tillagan geri einnig ráð fyrir stækkunarmöguleikum á núverandi byggingum, upplýstum gönguleiðum, útivistarsvæði og stækkun bílastæða.
 

 

 

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í safnahúsi Ráðshúströð, hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is, frá 5. október til 16. nóvember 2011, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 12:00 miðvikudaginn 16. nóvember 2011 og skal athugasemdum skilað skriflega til umhverfis- og framkvæmdasviðs, Tangagötu 1, 2. hæð, og/eða í tölvupósti (bygg@vestmannaeyjar.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Sigurður Smári Benónýsson
skipulags- og byggingarfulltrúi.

Jafnlaunavottun Learncove