Dagforeldrar óskast.. Vilt þú njóta dagsins með litlum börnum?
Í Vestmannaeyjum er þörf fyrir fleiri dagforeldra í heimahúsum til að gæta yngstu Vestmannaeyinganna. Ef til vill er það eitthvað fyrir þig? Starf sem dagforeldri í heimahúsum felur í sér spennandi og krefjandi verkefni með litlum börnum.
Fyrir hverja?
Til að gerast dagforeldri þarft þú að hafa ríka ábyrgðartilfinningu og geta veitt börnunum góða umönnun, öryggi og hlýju. Þú þarft ekki að hafa aðra menntun en námskeið fyrir dagforeldra og taka þátt í skyndihjálparnámskeiðum og öðrum námskeiðum og fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni.
Sjálfstæð vinna
Sem dagforeldri starfar þú sem sjálfstæður verktaki, en starfsleyfi og eftirlit er í höndum leikskólafulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Sparnaður
Sem dagforeldri gætir þú barna á þínu eigin heimili og sparar þér þannig tíma og peninga við að koma eigin börnum í gæslu
Tími fyrir eigin börn
Sem dagforeldri skapar þú þér atvinnu, sem gefur þér möguleika á að verja meiri tíma með eigin börnum um leið og þú hefur tekjur af að gæta barna annarra. Leyfi er veitt fyrir allt að fjórum börnum fyrsta árið og fimmta barninu eftir eitt ár, þar með eru talin eigin börn undir grunnskólaaldri.
Námskeið fyrir starfandi og nýja dagforeldra hefst 28. febrúar og stendur til 4. apríl.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Frekari upplýsingar um störf dagforeldra veitir
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í þjónustuveri Ráðhússins.