Dagdvölin Bjargið leitar af sumarstarfsmanni
Fjölbreytt og skemmtilegt starf í dagdvölinni Bjarginu.
Dagdvöl er stuðningsúrræði við þá sem búa í heimahúsum en þurfa að staðaldri eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagdvöl er boðið upp á þjálfun, tómstundaiðju og félagslegan stuðning.
Leitað er að sumarstarfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst í 80% -100% starf. Vinnan er unninn á dagvinnutíma alla virka daga.
Helstu verkefni:
- Félagslegan stuðning
- Aðstoð við virkni og önnur verkefni sem starfsmanni er falið af yfirmanni
Hæfniskröfur:
- Hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð
- Hafa áhuga á að vinna með fólki
- Vera stundvís og samviskusamur
- Góð samskiptahæfni
____________________________________________________________________________
Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.
Laun skv. kjarasamningi Stavey/Drífandi. Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri á Bjarginu dagdvöl Ragnheiður Geirsdóttir í síma 481-8881 eða á ragnheidurg@vestmannaeyjar.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.