Auglýsing um sölu fjarskiptainnviða
Eygló eignarhaldsfélag ehf
Eygló eignarhaldsfélag ehf., kt. 550322-1290, Kirkjuvegi 50, 900 Vestmannaeyjar, sem er félag í 100% eigu Vestmannaeyjabæjar, auglýsir hér með til sölu fjarskiptainnviði sína.
Félagið var stofnað til að leggja og reka ljósleiðara í Vestmannaeyjum. Hyggst seljandi selja allar sínar eignir; fastafjármuni og búnað þeim tengdum, þ.e. alla ljósleiðarastrengi sem lagðir hafa verið, ásamt öllu fylgifé og búnaði sem tengist ljósleiðaranetinu sem hefur þegar verið lagt.
Fyrir nánari upplýsingar, tæknileg atriði, fjölda og legu staðfanga, og annað sem varða hið selda er þess óskað að haft verði samband við Víðir Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Eyglóar á netfangið vidir@vestmannaeyjar.is
Tilboðum skal skilað fyrir kl. 12.00 þann 11. júlí 2025. Tilboð skulu send rafrænt á netfangið postur@vestmannaeyjar.is innan tilboðsfrests.
Í tilboði skal bjóðandi greina frá nafni, kennitölu og heimilisfangi. Bjóðandi skal jafnframt greina frá starfsréttindum sínum á sviði fjarskipta, fjárhagslegri getu sinni til að standa undir tilboði sínu og rekstri ljósleiðarakerfis og tæknilegri og faglegri getu sinni til að eiga og reka slíkt kerfi. Í skilningi þessarar auglýsingar eru það hagsmunir íbúa Vestmannaeyja að ljósleiðarakerfið nýtist á sem hagkvæmastan og skilvirkastan hátt þannig að allir íbúar sveitarfélagsins njóti aðgangs að góðri fjárskiptaþjónustu og fullnægjandi háhraðatengingum.