Auglýsing um nýtt deiliskipulag fyrir iðnaðarsvæði IS-3, borholusvæði sunnan Helgafells í Vestmannaeyjum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 10. janúar 2005 að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir "Iðnaðarsvæði IS-3, borholusvæði sunnan Helgafells? í Vestmannaeyjum, í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Tillagan felst í meginatriðum í því að Iðnaðarsvæði IS-3, borholusvæði sunnan Helgafells, verði nýtt sem borstæði fyrir tilraunarborholu. Deiliskipulagstillagan er byggð á tillögu að nýju aðalskipulagi Vestmannaeyja sem samþykkt hefur verið af bæjarstjórn en ekki staðfest af umhverfisráðherra.
Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vef Vestmannaeyjabæjar www.vestmannaeyjar.is, frá 19. janúar 2005 - 16.febrúar 2005. Nánari upplýsingar veitir skipulags-og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna sem skulu hafa borist umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar, Tangagötu 1, eigi síðar en 2. mars 2005. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.
Vestmannaeyjum,11. janúar 2005 .
Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar