20. september 2021

AUGLÝSING UM KJÖRSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM.

Kjörstaður í Vestmannaeyjum vegna alþingiskosninga sem fram fara

25. september 2021 verður í Barnaskóla Vestmannaeyja, inngangur um norður- og suðurdyr.

Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.

Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00 að kveldi sama dags.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 21. ágúst 2021 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra, sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 21. ágúst 2021 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum, er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini, getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Yfirkjörstjórn verður til húsa á kjörstað í Barnaskóla Vestmannaeyja á kjördegi.

Yfirkjörstjórnin í Vestmannaeyjum.

Jóhann Pétursson

Ólafur Elísson

Þór Ísfeld Vilhjálmsson