18. júlí 2005

Auglýsing um deiliskipulag

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 1. júlí 2005. að auglýsa nýtt deiliskipulag á athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Tillaga

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum þann 1. júlí 2005. að auglýsa nýtt deiliskipulag á athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.

Tillagan felst í meginatriðum í að áformað er að rífa húsin að Strandvegi 78-80 og í landfyllingu austan við núverandi athafnasvæði og byggingar Vinnslustöðvar Vestmannaeyja.

Á landfyllingu er áformað að reisa hráefnis-, mjöl-, lýsis- og olíutanka og gera svæðið aðgengilegra til þeirra nota.

Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar, www.vestmannaeyjar.is, frá 15. júlí 2005 til 12. ágúst 2005. Nánari upplýsingar veitir skipulags-og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna sem skulu hafa borist umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar, Tangagötu 1, eigi síðar 26. ágúst 2005. Þeir sem ekki gera athugasemd við tillöguna teljast samþykkir henni.

V estmannaeyjum, 8. júlí 2005.
Umhverfis- og framkvæmdasvið
Vestmannaeyjabæjar.

Skoða skipulagstillögu: Vinnslustöð Vestmannaeyja athafnasvæði (.pdf, 1,8 Mb)


Jafnlaunavottun Learncove