Auglýsing Deiliskipulag uppgröftur við Suðurveg
Deiliskipulag fyrir Pompei norðursins, uppgraftarsvæði við Suðurveg
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagsáætlun fyrir "Pompei norðursins? uppgröft við Suðurveg.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á skógræktarsvæði í brekkunni austan við Austurbæinn verði hverfisverndarsvæði þar sem grafin verða út hús úr vikurskriðunni frá því í gosinu á Heimaey 1973.
Uppgraftarsvæðið sem hefur svæðismörk meðfram húsagötum til vesturs og Eldfellsvegi til austurs, verður grafið upp í áföngum. Grafið verður ca, 4-10 m á dýpt þar sem veggir standa með 60° halla upp að sléttu 3 m svæði í 48 m hæð, þaðan verði halli á uppgraftarsvæði 45°. Á þessu slétta svæði er gert ráð fyrir að byggja yfir uppgraftarsvæðið.
Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar: www.vestmannaeyjar.is, frá 30. mars 2005 til 27. apríl 2005. Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar. Eru þeir sem telja sig hagsmuna eiga að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eigi síðar en kl. 14.00, 11. maí 2005.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast vera samþykkir tillögunni. Vestmannaeyjum, 18. mars 2005.
Sigurður Smári Benónýsson,
skipulags- og byggingarfulltrúi Vestmannaeyja.
- Auglýsing í Lögbirtingablaði (.pdf)