14. ágúst 2014

Atvinna- starfsmaður í Týsheimili

Óskað er eftir starfsmanni í Týsheimili. Um er að ræða ca. 55% starfshlutfall og er ráðningartími frá 15. september – 15. maí.
 
 
 
 
Vinnutími á virkum dögum frá 13-18 nema föstudaga frá 13-15. Gæti hentað skólafólki og möguleiki á að ráða tvo starfsmenn sem skipta með sér vöktum.
Einnig möguleiki á afleysingum í Íþróttamiðstöð meðfram starfinu og sumarvinnu. Í starfinu felst m.a hreingerningar, eftirlit, almenn þjónusta við notendur mannvirkisins o.fl.
 
Leitað er að traustum starfsmanni, sjálfstæðum með góða þjónustulund sem á gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.
Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.
 
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is
 

Jafnlaunavottun Learncove