Atvinna - Íþróttamiðstöð og Týsheimili
Óskað er eftir starfsmönnum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Um er að ræða tvær fastar karlmannsstöður í 100% starfshlutfalli. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem fyrst.
Unnið er á dag – kvöld- og helgarvöktum. Í starfinu felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla o.fl.
Leitað er að traustum starfsmönnum með góða þjónustulund sem eiga gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.
Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is
Atvinna - Týsheimili
Einnig starf í Týsheimili, ca. 50-60%, þar sem eingöngu er unnið á virkum dögum yfir vetrartíma á tímabilinu 15.45-21.00. karlmanns- eða kvenmannsstaða. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf um miðjan september.
Í starfinu felst m.a. þjónusta við notendur íþróttahúsa, hreingerningar o.fl.
Leitað er að traustum starfsmönnum með góða þjónustulund sem eiga gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is