Atvinna í íþróttamiðstöð
Óskað er eftir karlmanni í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Um er að ræða 100% starfshlutfalli til framtíðar. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem fyrst en í síðasta lagi 1. nóvember.
Unnið er á dag – kvöld- og helgarvöktum. Í starfinu felst m.a baðvarsla, sundlaugarvarsla, hreingerningar, afgreiðsla o.fl.
Leitað er að traustum starfsmanni með góða þjónustulund sem á gott með að umgangast börn jafnt sem fullorðna. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, standast hæfnispróf sundstaða og skila inn saka- og heilbrigðisvottorði áður en þeir hefja störf.
Frekari upplýsingar um hæfniskröfur fást hjá forstöðumanni.
Umsóknarfrestur er til 3. september nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Ráðhúss og ber að skila umsóknum þangað.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2401 og 694-2456. Einnig á netfangið sportvm@vestmannaeyjar.is