Atvinna í boði
Stuðningsþjónusta/dagvinna.
Óskum eftir að ráða starfsmann í stuðningsþjónustu starfið felur í sér aðstoð við einstaklinga inni á heimili þeirra við athafnir daglegs lífs, þrif, matarinnkaup ofl. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða 90% starf til frambúðar og er vinnutími alla virka daga og þyrfti viðkomandi að geta hafið störf 11. maí 2020. Allar frekari upplýsingar gefur deildarstjóri stuðningsþjónustu í síma 488-2607 heimilishjalp@vestmannaeyjar.is eða Sólrún Erla Gunnarsdóttir deildarstjóri í málefnum aldraðra á solrun@vestmannaeyjar.is
Umsóknir óskast sendar á rafrænu formi á ofangreind netföng. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2020. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.