9. mars 2020

Atvinna í boði

Stuðningsþjónusta/dagvinna.
Óskum eftir að ráða starfsmann í stuðningsþjónustu starfið felur í sér aðstoð við einstaklinga inni á heimili þeirra við athafnir daglegs lífs, þrif, matarinnkaup ofl.

Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða 90% starf til frambúðar og er vinnutími alla virka daga og þyrfti viðkomandi að geta hafið störf 1 apríl 2020. 

Allar frekari upplýsingar gefur deildarstjóri stuðningsþjónustu í síma 488-2607 Ásta Halldórsdóttir heimilishjalp@vetmannaeyjar.is eða Sólrún Gunnarsdóttir deildarstjóri í málefnum aldraðra á solrun@vestmannaeyjar.is 

Umsóknir óskast sendar á rafrænu formi á ofangreind netföng. Umsóknarfrestur er til 22 marz 2020. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. 


Jafnlaunavottun Learncove