Atvinna - atvinna
Vantar starfsmenn á Sóla og á sérdeild leikskóla.
Lausar eru til umsóknar stöður á leikskólanum Sóla. 100% staða kjarna/deildarstjóra, 100% staða á kjarna, einnig tvær 50% stöður eftir hádegi á kjarna. Æskilegt að viðkomandi hafi leikskólakennarapróf eða sambærilega menntun. Leikskólinn Sóli starfar eftir Hjallastefnunni.
Upplýsingar veitir Margrét Brandsdóttir leikskólastjóri í síma 481-1928 eða netfang soli@vestmannaeyjar.is
Starfsmann vantar á sérdeild leikskóla í 3ja tíma vinnu eftir hádegi sem fyrst. Æskilegt er að umsækendur hafi leikskólakennarapróf, þroskaþjálfapróf eða aðra uppeldismenntun. Umsóknareyðublöð fást í þjónustuveri Ráðhússins. Nánari upplýsingar veitir Jón Pétursson, sálfræðingur eða Auður Karlsdóttir, leikskólafulltrúi.
Upplýsingar ekki veittar í gegnum síma.
Fræðslu- og menningarsvið Vestmannaeyja.