17. júní hátíðahöldin
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá.
09:00 Fánar dregnir að húni í bænum |
||
11:00 Hraunbúðir Fjallkonan – Barbora Gorová flytur hátíðarljóð Tónlistaratriði – Una og Sara |
||
12:00 – 13:15 Sagnheimar Þann 17. júní n.k. er öld liðin frá fæðingu frændsystkinanna Jóns Björnssonar í Bólstaðarhlíð og Þóru Sigurjónsdóttur frá Víðidal, sem fæddust sama dag, af systrum og í sama húsi, sem er Víðidalur hér í Vestmannaeyjum. Afkomendur Jóns og Þóru munu minnast þeirra og afhenda safninu bækur sem teknar hafa verið saman um líf þeirra og störf.
13:00 Íþróttamiðstöð |
||
Bæjarbúar og aðrir gestir safnast saman fyrir skrúðgöngu. Lagt af stað kl 13:45. Gengið verður í lögreglufylgd frá Íþróttamiðstöðinni niður Illugagötu, inn Faxastíg og áfram Vestmannabraut að Stakkagerðistúni. Fánaberar úr Skátafélaginu Faxa leiða gönguna og félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika undir.
Leikfélag Vestmannaeyja verður á vappi, hoppukastalar, andlitsmálning, leikir og fjör ef veður leyfir. Fimleikafélagið Rán og Sundfélag ÍBV verða með flos- og poppsölu. Frítt inn á Sagnheima í tilefni dagsins. Í tilefni af 80 ára afmælisins gefur forsætisráðuneytið öllum landsmönnum bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær með þjóðhátíðarljóðum og greinum um fjallkonuna. Bæjarbúar geta sótt sér eintak af bókinni í Safnahúsinu. |