Fundargerðir

Til baka Prenta
Fræðsluráð Vestmannaeyja - 378

Haldinn Í fundarsal Fjölskyldu- og fræðslusviðs við Kirkjuveg,
06.11.2023 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Aníta Jóhannsdóttir formaður,
Hafdís Ástþórsdóttir aðalmaður,
Hildur Sólveig Sigurðardóttir varaformaður,
Ellert Scheving Pálsson aðalmaður,
Halla Björk Hallgrímsdóttir aðalmaður,
Jón Pétursson framkvstj.sviðs, Drífa Gunnarsdóttir starfsmaður sviðs, Anna Rós Hallgrímsdóttir starfsmaður sviðs, Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir starfsmaður sviðs, Helga Björk Ólafsdóttir , Kolbrún Matthíasdóttir , Eyja Bryngeirsdóttir áheyrnarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Drífa Gunnarsdóttir, fræðslufulltrúi
Mættar sem áheyrnarfulltrúar: Kolbrún Matthíasdóttir, Anna Rós
Hallgrímsdóttir, Guðrún S. Þorsteinsdóttir og Eyja Bryngeirsdóttir. Mættir
starfsmenn sviðs: Drífa Gunnarsdóttir og Jón Pétursson. Einnig mættu sem
gestir á málum 1 og 2 Bjartey Gylfadóttir, Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Hildur
Dögg Jónsdóttir. Helga Björk, Eyja og Anna Rós yfirgáfu fund í 4. máli.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 201910096 - Þróunarsjóður leik- og grunnskóla
Bjartey Gylfadóttir, kennari við Grunnskóla Vestmannaeyja, kynnti verkefnið Heimasíða og rafrænt kennsluefni í myndmennt en það hlaut styrk úr Þróunarsjóði leik- og grunnskóla 2022


Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna og óskar Bjarteyju til hamingju með þetta flotta verkefni.
2. 202106031 - Snemmtæk íhlutun-mál og læsi.
Helga Björk Ólafsdóttir, Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Hildur Dögg Jónsdóttir kynntu handbók sem unnin var í Sóla í tengslum við þróunarverkefnið Snemmtæk íhlutun-mál og læsi.

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna á handbókinni sem á án efa eftir að styðja vel við það faglega starf sem er í leikskólanum.
3. 201310060 - Starfsáætlanir leik- og grunnskóla Vestmannaeyjabæjar.
Helga Björk Ólafsdóttir, Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Hildur Dögg Jónsdóttur kynntu og lögðu fram starfsáætlun leikskólans fyrir skólaárið 2023-2024

Niðurstaða
Ráðið þakkar kynninguna og staðfestir áætlunina.
Starfsskýrsla_Sóli_2023.pdf
4. 202302025 - Umsóknir í leikskóla og staða inntökumála
Framhald af 1. máli 374. fundar fræðsluráðs Vestmannaeyja. Annars vegar var um að ræða breytingar á reglum um heimgreiðslur og hins vegar heildarendurskoðun á gjaldskrá og reglum leikskóla.

Á 374. fundi samþykkti meirihluti fræðsluráðs að hækka heimgreiðslur úr 110.000 kr. í allt að 220.000 kr. á mánuði við upphaf næsta fjárhagsárs og var skólaskrifstofu falið að endurskoða reglur með tilliti til breyttra forsendna. Endurskoðaðar reglur um heimgreiðslur með frekari útfærslu voru lagðar fram.

Á sama fundi óskaði fræðsluráð Vestmannaeyja eftir endurskoðun á gjaldtöku í leikskóla miðað við aldursviðmið og mismunandi kostnað aldurshópa. Jafnframt samþykkti ráðið enn frekar í 7. máli 376. fundar að farið yrði í heildarendurskoðun á gjaldtöku og reglum leikskóla skv. beiðni skólaskrifstofu.

Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór yfir vinnuskjal með tillögum að breytingum á gjaldtöku fyrir ákveðna aldurshópa. Jafnframt fór hann yfir tillögur að breytingum á innritunar- og innheimtureglum.

Niðurstaða
Endurskoðaðar reglur um heimgreiðslur og þær útfærslur sem þar koma fram voru samþykktar með þremur atkvæðum meirihluta E og H lista gegn tveimur atkvæðum minnihluta D lista.


Bókun fulltrúa D lista:
Undirritaðar hafa efasemdir um hugmyndir og útfærslu fulltrúa meirihlutans um hækkun og tekjutengingu heimgreiðslna. Með því fyrirkomulagi mun hópur foreldra eiga rétt á minni og jafnvel engum heimgreiðslum ólíkt því sem er í dag á meðan annar hópur mun eiga rétt á umtalsvert hærri heimgreiðslum. Þannig vinnur ákvörðunin gegn upphaflegum markmiðum heimgreiðslna að hvetja alla þá foreldra sem hafa möguleika á að dvelja lengur heima með ungabörnum sínum og draga úr eftirspurn eftir leikskólavist fyrir yngstu börnin. Undirritaðar telja að aðgerðin muni að öllum líkindum kosta sveitarfélagið meira þegar upp er staðið og ekki ná markmiðum sínum. Að öðru leyti vísum við í fyrri bókun um málið frá 374. fundi fræðsluráðs.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Halla Björk Hallgrímsdóttir (sign.)

Bókun fulltrúa E og H lista:
Hækkun heimgreiðslna er aðgerð til þess að tryggja val um úrræði fyrir börn og foreldra að loknu fæðingarorlofi. Tölulegar upplýsingar liggja fyrir um aukna þörf á nýjum leikskólaplássum á næstu tveimur árum. Þessi útfærsla á hækkun heimgreiðslna er tímabundin aðgerð í eitt ár. Markmiðið er að koma til móts við foreldra og um leið að kanna hvort greiðslurnar stuðli að ákveðnu jafnvægi þegar kemur að eftirspurn eftir leikskólaplássum. Það er mikilvægt að heimgreiðslur séu raunverulegt val fyrir foreldra sem hafa þess kost að vera lengur heima með ungum börnum sínum, tekjutenging er þar mikilvæg til að stuðla að því að fleiri hafi þetta val. Það er fjárhagslega hagkvæmt fyrir sveitarfélagið að fara blandaða leið, þ.e. með heimgreiðslum og fjölgun leikskólaplássa. Gert er ráð fyrir að kostnaður verði svipaður og hann er nú við þessa nýju nálgun við heimgreiðslur, samkvæmt áætlunum skólaskrifstofu. Ekki er hægt að segja til um hvort að þetta úrræði mun ná þeim markmiðum sem því er ætlað, nema með því að láta á það reyna í eitt ár og endurmeta stöðuna að því loknu.
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Ellert Scheving Pálsson (sign.)
Hafdís Ástþórsdóttir (sign.)

Bókun fulltrúa D lista:
Tilgangur heimgreiðslna hlýtur að vera að reyna að draga úr eftirspurn eftir leikskólaplássum hjá börnum allra foreldra en ekki bara hinna tekjulægri. Með tekjutengingu er því fyrst og fremst verið að hvetja þá tekjulægri til að fresta leikskólagöngu ungra barna sinna. Það teljum við umhugsunarvert og ganga gegn upphaflegum tilgangi heimgreiðslna.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Halla Björk Hallgrímsdóttir (sign.)

Málinu er þá vísað til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.

Fræðsluráð tekur afstöðu til tillagna um breytingar á gjaldskrá leikskóla og reglum á næsta fundi ráðsins.
Heimgreiðslur_reglur.pdf
5. 202308041 - Fjárhagsáætlun fyrir árið 2024
Framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti málaflokka fræðsluráðs eftir fyrstu umræðu bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar 2023

Niðurstaða
Ráðið þakkar upplýsingarnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til baka Prenta