3. maí 2022

Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar lóðir við Áshamar 79-93

Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar lóðir við Áshamar 79-93 á deiliskipulagssvæði Áshamars 1-75. Um er að ræða 4 lóðir fyrir fjölbýlishús. Lóðastærðir eru á bilinu 1.036 m2 – 1.175 m2 og er hámarksbyggingarmagn á hverri lóð 576 m2. Gert er ráð fyrir 4 íbúðum á hverri lóð.

Ashamarslodir

Lóðir og byggingarreitir eru sýndar á deiliskipulags uppdrætti og greinagerð. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel skilmála í greinagerð deiliskipulagsins. Vakin er athygli á nýjum vinnureglum við lóðaúthlutun hjá Vestmannaeyjabæ.

Gögn með umsókn:
Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda vinnureglur um úthlutun lóða í Vestmannaeyjum. Í reglunum eru tilgreindar kröfur til umsækjenda. Umsækjendur skulu skila inn yfirlýsingu banka eða annarrar um greiðsluhæfni.

Skipulags- og byggingaskilmála má finna í viðhengi hér að neðan.
Lóðirnar eru afhentar í núverandi ásigkomulagi. Frágangur gatna mun fara fram samhliða uppbyggingu á lóðum. Lóðirnar eru tilbúnar til framkvæmda.

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2022.

Sækja um lóð