26. október 2021

Stuðningsfjölskylda óskast

Vilt þú taka að þér að vera stuðningsfjölskylda fyrir barn með fötlun?

Óskað er eftir stuðningsfjölskyldu til að vera með barn á yngsta stigi grunnskóla fjóra sólarhringa á mánuði. Til greina kemur að deila þessu á tvær stuðningsfjölskyldur.

Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka barn eða börn tímabundið í umsjá sína í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldum þeirra. Við það að gerast stuðningsfjölskylda léttir það ekki aðeins álagi á fjölskyldum barnanna heldur veitir það börnunum tækifæri til aukins þroska. Dvöl hjá stuðningsfjölskyldu er samningsbundin til ákveðins tíma.


Áhugasamir hafi samband við Björgu Ó. Bragadóttur, umsjónarþroskaþjálfa í síma: 488 2000 eða á netfangið bjorg@vestmannaeyjar.is