24. febrúar 2021

Stóra upplestrarkeppnin-upplestrarhátíð í skóla

Stóra upplestrarkeppnin er haldin í 7. bekk ár hvert og hefst undirbúningur á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og lýkur í febrúar/mars.

Keppnin skiptist í tvo hluta, ræktunarhluta og keppnishluta. Ræktunarhlutinn er sá hluti upplestrarkeppninnar sem mestu máli skiptir en þá er lögð sérstök rækt við vandaðan upplestur og framburð í hverjum bekk. Hátíðarhlutinn er hin eiginlega keppni og er í tvennu lagi. Annars vegar er upplestrarhátíð í skólanum þar sem valdir eru þrír nemendur til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans. Hins vegar er lokahátíð í héraði en þar koma fram fulltrúar skólanna í héraðinu og lesa ljóð og laust mál sem þeir hafa undirbúið vandlega.

Þann 24. febrúar var upplestrarhátíðin í skóla og fór hún fram í Tónlistarskólanum. Áður en upplestur hófst flutti Lovísa Ingibjörg Jarlsdóttir lagið Don‘t worry be happy á saxafón. Þá lásu 13 hæfileikaríkir lesarar part úr sögunni Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur og ljóð eftir Þórarin Eldjárn. Það kom í hlut dómnefndar, sem skipuð var Helgu Sigrúnu Þórsdóttur, Hjalta Enok Pálssyni og Kára Bjarnasyni, að velja þá þrjá nemendur sem keppa fyrir hönd skólans í Stóru upplestrarkeppninni í héraði sem haldin verður um miðjan apríl á Kirkjubæjarklaustri. Þeir nemendur sem urðu fyrir valinu eru Magdalena Jónasdóttir, Heiðmar Þór Magnússon og Sigrún Gígja Sigurðardóttir og þá var Ingi Gunnar Gylfason valinn sem varamaður.

  • Fulltruar-GRV-i-Storu-upplestrarkeppninni-i-heradi
  • Lesararnir-threttan-sem-toku-thatt-i-upplestrarhatid-i-skola