4. mars 2021

Nýr þjónustufulltrúi á Rauðagerði

Þuríður Bernódusdóttir ráðin sem þjónustufulltrúi á skrifstofu fjölskyldu- og fræðslusviðs, Rauðagerði.

Alls 18 umsækjendur sóttu um stöðu þjónustufulltrúa hjá fjölskyldu- og fræðslusviði. Umsóknir voru metnar út frá þeim þáttum sem fram komu í auglýsingu og vóg menntum og starfsreynsla þar mest. Fjórir umsækjendur sem fengu hæsta vægi voru kallaðir í viðtal. Að auki var haft samband við ummælendur sem þessir fjórir aðilar gáfu upp. Framkvæmdastjóri sviðs ásamt yfirfélagsráðgjafa og fræðslufulltrúa fóru yfir umsóknir og sátu viðtölin.

Við mat á umsækjendum kom Þuríður Bernódusdóttir sterkust út. Vegur þar mest 14 ára reynsla hennar í sambærilegu starfi þjónustufulltrúa hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar (Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalaness) og góð ummæli sem fylgja henni. Að auki hefur hún langa reynslu sem gjaldkeri hjá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum.

Um leið og við bjóðum Þuríði velkomna til starfa vill Vestmannaeyjabær koma á framfæri þakklæti til allra umsækjenda fyrir áhuga þeirra á starfinu.