Byggingaleyfi

Byggingarfulltrúi annast sérafgreiðslur byggingarleyfisumsókna samkvæmt reglugerð nr. 112/2012. Byggingarfulltrúi gengur úr skugga um að aðaluppdrættir séu í samræmi við gildandi skipulag, lög og reglugerðir, ákveður í samræmi við byggingarreglugerð hvaða hönnunargögn skulu lögð fram vegna byggingarleyfis, gengur úr skugga um að þau séu í samræmi við þær reglur er gilda um viðkomandi byggingu eða mannvirki og áritar uppdrætti um samþykkt á þeim.

 

Aðsetur: Skildingavegur 5

Skrifstofa umhverfis-og framkvæmdasviðs er opin alla virka daga frá kl. 8:00 – 17:00.

Viðtals- og símatími byggingarfulltrúa er milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga

Sími: 488-2530

Hvernig skal sækja um byggingarleyfi?

Stöðluðu umsóknareyðublaði er skilað til embættis byggingarfulltrúa í gegnum þjónustuver að Skildingavegi 5. Með umsókn skulu fylgja aðaluppdrættir, útfylltur gátlisti vegna aðaluppdrátta og önnur viðeigandi fylgiskjöl sem eiga við framkvæmdina. Starfsmaður þjónustuvers tekur við umsókninni og framsendir hana til embættis byggingarfulltrúa.

Hvenær skal sækja um byggingarleyfi?

Sækja þarf um byggingarleyfi til að grafa grunn fyrir mannvirki, reisa það, rífa eða flytja, breyta því, burðarkerfi þess eða lagnakerfum eða breyta notkun þess, útlit og formi. Byggingarfulltrúinn í Vestmannaeyjum annast útgáfu byggingarleyfa fyrir mannvirki sem staðsett eru í Vestmannaeyjum og er leyfið veitt á grundvelli laga um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Undanþegið byggingarleyfi eru einnig ýmsar minniháttar framkvæmdar samkvæmt gr. 2.3.5 í byggingarreglugerðinni.

Undanþegið byggingarleyfi

Minniháttar framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi en tilkynningarskyldar. Framkvæmdaraðili ber þó ábyrgð á að ekki skapist hætta fyrir fólk og eignir og að virt séu öll viðeigandi ákvæði reglugerðarinnar. Hann ber jafnframt ábyrgð á að framkvæmd sé í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir og að ekki sé gengið á rétt nágranna.

Hverjir geta sótt um byggingarleyfi?

Húseigendur og lóðarhafar eða hönnunarstjóri í umboði þeirra geta sótt um byggingaleyfi.

Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 ber húseigendum að ráða löggiltan hönnunarstjóra. Hönnunarstjóri hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á því að hönnunargögn séu til staðar og með þeim hætti sem byggingarleyfisumsókn og framkvæmd krefst. Hönnunarstjóri er að öllu jöfnu sá aðili sem annast öll samskipti við embætti byggingarfulltrúa þegar sótt er um byggingarleyfi.

 

Netfang fyrir tilkynningar, fyrirspurnir og umsóknir:

bygg@vestmannaeyjar.is

Skipulags- og byggingafulltrúi er Sigurður Smári Benónýson.

Gjaldskrá skipulags-og byggingarmála

· Gatnagerðargjöld

· Gjaldskrá skipulags og byggingarmála

Samþykktir umhverfis-og skipulagsráðs

· Lóðarúthlutunarreglur

· Samþykkt um afgreiðslur erinda

Umsóknir og eyðublöð

· Lóðarumsókn

· Afsölun lóðar

· Byggingaleyfi

· Gátlisti aðaluppdrátta

· Framkvæmdaleyfi

· Tilkynning skv. 2.3.5 gr. bygg.regl.

· Fyrirspurn (skipulags-og byggingarmál)

· Umboð eiganda til Byggingarstjóra

· Umboð eiganda til Hönnunarstjóra

· Byggingastjóri staðfesting ábyrgðar

· Byggingarstjóraskipti

· Iðnmeistari staðfesting ábyrgðar

· Meistaraskipti

Lög og reglugerðir

Mannvirkjastofnun

Skipulagsstofnun

Reglugerd.is

Teikningar

KORTAVEFUR (loftmynd dags. 4.08.2018) 

Á kortavef Vestmannaeyjabæjar er ma. að finna upplýsingar um lóðir, samþykktar teikningar, lagnir í jörðu og skipulagsmál.

ATH: Varðandi allar jarðvegsframkvæmdir skal leita upplýsinga um lagnir hjá viðkomandi veitufyrirtæki og / eða hjá Vestmannaeyjabæ.

Hægt er að kaupa ljósrit af teikningum flestra húsa bæjarins á skrifstofu skipulags- og byggingafulltrúa, og eru það í flestum tilfellum til grunnteikningar, lagnateikningar, útlitsteikningar og afstöðuteikningar.

Skipulags- og byggingafulltrúi


Jafnlaunavottun Learncove