Sækja þarf um byggingarleyfi í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar, innskráning er með rafrænum skilríkjum Íbúagátt
Almennt þarf að sækja um leyfi ef fyrirhugað er að gera breytingar, rífa, flytja eða breyta því sem fellur undir hugtakið mannvirki, eða ef reisa á nýtt mannvirki. Með breytingum er til dæmis átt við breytingar á útliti, burðarkerfi og lagnakerfum mannvirkis. Kemur þetta fram í 1. mgr. 2.3.1. gr. byggingarreglugerðar.
Framkvæmdir (skv. mgr. 11.1) skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag.
Vakin er athygli á því að einnig þarf að sækja um byggingarleyfi fyrir niðurrifi.
Skilgreining á mannvirki er að finna í 13.mgr. 3gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og það sem er undanþegið byggingarleyfi kemur fram í 1.mgr. 9.gr.
Upplýsingar um ofangreind atriði er að finna í byggingarreglugerð nr. 112/2012: kafla 2.3.7 og 2.4
Spurt og svarað um byggingarmál
Þær teikningar sem eru til af byggingum, þ.e. aðaluppdráttum, burðarþols- og lagnateikningum ásamt séruppdráttum, er að finna á https://www.vestmannaeyjar.is/ og fara á Kortavef .
Þar er hakað við "Teikningar af byggingum" og smellt á rauða hringinn á byggingunni sem verið er að leita eftir.
Sækja þarf um leyfi fyrir svalalokun og sólhúsum í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar, innskráning er með rafrænum skilríkjum - HMS??
Skila þarf inn aðaluppdráttum og séruppdráttum sem sýna festingar og fleira. Einnig þarf að skila samþykki meðeigenda þegar það á við. Hægt er að hefjast handa með framkvæmdir að fengnu samþykki byggingarfulltrúa og þegar búið er að greiða afgreiðslugjald.
Í þeim tilfellum þar sem er verið að byggja yfir svalir þarf að skoða það sérstaklega í tengslum við nýtingarhlutfall lóðar.
Sjá einnig byggingarreglugerð nr. 112/2012 í gr. 6.7.6 og 9.6.17
Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun á húsnæði, t.d. ef breyta á atvinnuhúsnæði í íbúðarhús eða bílskúr í íbúð.
Fyrsta skrefið er í gegnum íbúagáttina á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.
Byggingarfulltrúi kynnir sér málið í samráði við skipulagsfulltrúa. Í einhverjum tilfellum má reikna með með því að notkunarbreytingar þurfi að fara í grenndarkynningu. Berist jákvætt svar frá skipulagsfulltrúa hefst hið formlega umsóknarferli um byggingarleyfi, þ.e.a.s. senda þarf inn aðaluppdrætti, verkteikningar ásamt því að skrá byggingarstjóra og iðnmeistara.
Hæð girðinga á lóðum skal vera í samræmi við skipulagsskilmála. Afla skal byggingarleyfis vegna girðinga og skjólveggja á lóðamörkum nema framkvæmdirnar séu undanþegnar byggingarleyfi skv. f-lið 1. mgr. 2.3.5. gr. Girðing eða skjólveggur á mörkum lóða er alltaf háður samþykki allra lóðarhafa óháð hæð girðingar eða skjólveggjar.
Leita skal samþykkis áður en hafist er handa við smíði girðingar eða skjólveggjar. Það sama við um opin svæði Vestmannaeyjabæjar, grassvæði, göngustíga, götur og fl. Sjá 7.2.3. byggingarreglugerð
Tilkynningaskyldar framkvæmdir
Í kafla 2.3 byggingarreglugerðar er greint frá því hvenær sækja þarf um byggingarleyfi.
Óheimilt er að grafa grunn fyrir mannvirki, reisa það, rífa eða flytja, breyta því, burðarkerfi þess eða lagnakerfum eða breyta notkun þess, útliti eða formi nema að fengnu leyfi viðkomandi leyfisveitanda, sbr. 2.3.5 og 2.3.6 gr.
Byggingarfulltrúi veitir byggingarheimild og byggingarleyfi vegna hvers konar mannvirkjagerðar sem háð er byggingarheimildar og byggingarleyfis sbr. 2.3.2
Allar framkvæmdir sem teljast meiriháttar, hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir.
Óheimilt er að hefja slíkar framkvæmdir nema fyrir liggi samþykki leyfisveitanda (skipulagsfulltrúa) um útgáfu framkvæmdaleyfis og að framkvæmdaleyfi hafi verið gefið út. Framkvæmdir sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum eru ávallt háðar framkvæmdaleyfi. Framkvæmdir sem háðar eru byggingarleyfi þurfa ekki framkvæmdaleyfi.
Upplýsingar um mannvirki, sem HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun) og byggingarfulltrúar óska eftir, skulu skráðar í skráningartöflu og fylgja aðaluppdráttum til byggingarfulltrúa. Hvert mannvirki er skráð sérstaklega í einni skráningartöflu. Mannvirkjahluta má skrá sérstaklega sem sér matshluta þegar:
- a) Byggingarfræðileg rök mæla með sjálfstæðri skráningu, s.s. byggingarefni og byggingarlag, enda geti hann staðið sjálfstæður samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar.
- b) Eignamörk mæla með því og nauðsynlegt reynist að gera sérstaka eignaskiptayfirlýsingu um hann.
Mannvirki skal skipt í hæðir samkvæmt reglum um hæðaskiptingu. Mannvirki skal skrá eftir lokunarflokkum.
Hæðum skal skipt í rými eftir reglum um eignarhald, höfuðflokkun og notkun rýma.
Fasteign er afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem fylgja henni og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.
Fasteign samanstendur af einni eða fleiri notkunareiningum, t.d. íbúð, verslun eða hvoru tveggja. Með hverri notkunareiningu er tilgreind hlutdeild í sameign. Sérhver fasteign hefur ákveðið fast númer, fasteignanúmer. Númerið er hlaupandi raðtala sem felur ekki í sér aðrar upplýsingar. Númerið er þinglýsingarandlag fasteignar. Sótt er um skráningu nýrra fasteigna eða breytingu á þeim hjá byggingarfulltrúa.
Sérhver landeign hefur ákveðið fast númer, landeignanúmer. Númerið er hlaupandi raðtala sem felur ekki í sér neinar upplýsingar.
Sveitarfélög og landeigendur gefa út mæliblöð landeigna þar sem fram kemur m.a. afmörkun og landeignanúmer.
Nýjustu útgáfu af skráningartöflu ásamt ýmiss konar leiðbeiningum má finna á vef HMS
Senda þarf beiðnir á byggingarfulltrúa til að nálgast mæli- og hæðarblöð
Hér vantar efni
Lóðarleigusamningur byggir á réttri skráðri stærð lóðar, skv. mæliblaði. Lóðarleigusamningar eru alla jafna gerðir til 50 ára og er víða komið að endurnýjun samninga í eldri hverfum bæjarins, sem þinglýstir lóðarhafar undirrita, ásamt kaupanda ef um sölu eignar er að ræða.
Almennt eru ekki takmarkanir á því að endurnýja lóðarleigusamninga, nema bæjarstjórn ákveði vegna skipulags eða öðrum ástæðum aðra notkun á viðkomandi lóð. Gildur lóðarleigusamningur þarf að vera til staðar, við afsal eignar. Sé lóðarleigusamningur útrunninn er hægt að óska eftir endurnýjun í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.
Byggingarfulltrúi fer yfir og áritar allar eignaskiptayfirlýsingar áður en þinglýst er, til staðfestingar að þær séu unnar í samræmi við reglugerð eignaskiptayfirlýsingar nr.910/2000