Leikskólar

Forráðamenn/foreldrar og börn þeirra, sem fá úthlutun á leikskólaplássum, skulu eiga lögheimili í Vestmannaeyjum.
Forráðamenn/foreldrar, sem áætla að flytja til Vestmannaeyja, geta, þremur mánuðum fyrir flutning, sótt um leikskólapláss.
Þeir skulu hafa flutt lögheimili sitt til Vestmannaeyja þegar leikskólaganga barnsins hefst.
Í umsókninni skal tilgreina m.a. æskilegan dvalartíma og hvaða leikskóla óskað er eftir. Hægt er að sækja um leikskóla til vara en sé það ekki gert er litið svo á að aðalval komi einungis til greina.
Leikskólaplássum er úthlutað eftir kennitölu, þ.e. eftir aldri barns. Aðalúthlutun leikskólaplássa er í janúar og að vori/hausti.
Vakin er athygli á því að við úthlutun á leikskólaplássum getur þurft að taka tilliti til skipulags á leikskólanum, aldurs barns og þess tíma sem er laus á hverjum leikskóla.
Hér er hægt að sækja um í leikskóla
Hægt er að óska eftir forgangi vegna barna með sérþarfir. Greining þarf að vera fyrirliggjandi frá viðurkenndum greiningaraðilum.
Aðrar beiðnir um forgang þurfa að berast skriflega og skulu afgreiddar hjá fræðsluráði. Fræðsluráð getur hafnað beiðni um ákveðinn leikskóla ef t.d. aðstæður leyfa ekki fleiri börn með sérþarfir.
Röðun á biðlista fer eftir aldri en á barn syskini á leikskóla getur það haft forgang inn á þann tiltekna leikskóla.
Vestmannaeyjabær veitir systkinaafslátt sem gildir milli leikskóla og/eða frístundavers. Hægt er að sækja um afslátt af vistunargjaldi ef meðalheildartekjur heimilis sl. þriggja mánaða skv. staðgreiðsluskrá eru allt að kr. 830.000 kr.
Viðmið um heilartekjur hækka skv. vísitölu um hver áramót. Sækja skal um afslátt á umsóknareyðublaði sem er að finna á vefsíðu sveitarfélagsins www.vestmannaeyjar.is eða í þjónustuveri Ráðhússins og því skal skila þangað.
Móttaka umsókna og afgreiðsla er í þjónustuveri Ráðhússins. Endurnýja þarf afslátt fyrir 15. ágúst ár hvert. Athygli er vakin á því að ekki er hæft að fá tvöfaldan afslátt, þ.e. tekjutengdan afslátt og systkinaafslátt.
- Sótt er um flutning milli leikskóla í íbúagátt.
- Umsókn er skráð í Karellen
- Fræðslufulltrúi tilkynnir leikskólastjóra þess leikskóla sem barnið er á að flutningsbeiðni sé komin.
- Barn fer á biðlista en flutningsbeiðnir eru afgreiddar við upphaf nýs skólaárs og þá eftir kennitölu.


