Fyrstu vikur nýs kjörtímabils
Maímánuður flaug sannarlega áfram enda margt í gangi. Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar og síðustu fundir ráða og nefnda kjörtímabilsins fóru fram. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum kjörnum fulltrúum sem sátu í ráðum og nefndum Vestmannaeyjabæjar fyrir gott samstarf á liðnu kjörtímabili. Ég var áfram ráðin bæjarstjóri Vestmannaeyja og er ég þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt.
Heimsóknir ráðherra, samgöngur og samstarfsverkefni
Atvinnuvegaráðherra heimsótti Vestmannaeyjar um miðjan maí og tók meðal annars þátt í athöfn vegna fyrsta áfanga listaverks eftir Olaf Eliasson. Athöfnin tókst afar vel og var fjölsótt. Einnig bárust þær ánægjulegu fréttir að Vestmannaeyjabær hlaut hæsta styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða árið 2026, alls 107 milljónir króna.
Í júní voru haldnir mikilvægir fundir um samgöngumál. Fjölsóttur opinn samgöngufundur fór fram með innviðaráðherra og vegamálastjóra. Fyrir fundinn átti bæjarstjórn fund með ráðherra og fulltrúum Vegagerðarinnar um stöðu samgangna til og frá Eyjum. Í framhaldi af þeim fundum hafa átt sér stað áframhaldandi samtöl við ráðherra, vegamálastjóra og Vegagerðina um samgöngumál, þar á meðal stöðu Herjólfs IV, Herjólfs III og Baldurs. Einnig heimsóttu fulltrúar dýpkunarfyrirtækisins Jan De Nul Vestmannaeyjar og kynntu áætlanir sínar vegna komandi verkefna.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra heimsótti einnig Vestmannaeyjar og tók þátt í fundum hér í bæ. Við það tækifæri var meðal annars farið í heimsókn í Laxey.
Bæjarstjórn og bæjarráð
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar fór fram 3. júní. Helstu mál á dagskrá voru kosningar í ráð og nefndir, ráðning bæjarstjóra og umræður um stöðu samgöngumála. Fundargerð hér.
Bæjarstjórn fundaði í annað sinn á þessu kjörtímabili 1. júlí og voru samgöngumál m.a. rædd, fyrirhugaðra breytingar dómsmálaráðherra á lögregluembættum og heilbrigðismál.
Fundargerðin er hér.
Bæjarráð hefur fundað tvisvar í júní og voru fjölmörg mikilvæg mál til umfjöllunar, þar á meðal:
- Samgöngumál
- NSL3 vatnslögnin og NSL4 almannavarnarvatnslögn
- Stofnun nýs vatnshóps
- Undirbúningur fjárhagsáætlunar
- Siðareglur kjörinna fulltrúa
Fundagerðirnar má nálgast hér:
Fjárhagsáætlun 2027
Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 er hafin. Tímalína verkefnisins hefur verið uppfærð og sviðsstjórar, forstöðumenn og fjármálastjóri vinna nú að yfirferð forsendna og verkefna næsta árs. Sumarið verður nýtt til undirbúnings áður en vinna haustsins hefst af fullum krafti.
NSL4 – staða framkvæmda
Vinna við undirbúning og framleiðslu NSL4 almannavarnastrengsins gengur samkvæmt áætlun. Unnið er að gagnaöflun vegna flutnings og samninga um þveranir annarra strengja. Framleiðsla og flutningur strengsins eru á áætlun og stefnt er að því að hann fari um borð í útlagningarskip 1. ágúst.
NSL-3
Í byrjun júlí var dómur kveðinn upp hjá Héraðsdómi Suðurlands vegna tjóns sem varð á vatnsleiðslu bæjarins í nóvember 2023. Stefndu, Vinnslustöðin, Huginn og VÍS tryggingar, voru sýknuð af kröfum bæjarins en málskostnaður var felldur niður. Dómurinn er viðamikill og varðar flókið lögfræðilegt álitamál. Verða forsendur hans skoðaðar vandlega áður en næstu skref í málinu verða ákveðin. Málið verður á dagská bæjarráðs þann 22. júlí nk.
Atvinnustefna og innviðauppbygging
Vinna við nýja atvinnustefnu Vestmannaeyjabæjar er hafin. Fyrstu vinnufundir verkefnisins hafa gengið vel og næstu skref verða tekin snemma í haust.
Skrifstofa forsætisráðherra óskaði jafnframt eftir fundi með fulltrúum Vestmannaeyjabæjar vegna eftirfylgni við atvinnustefnu fyrir Ísland. Á fundinum var meðal annars rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir við stórskipakant norðan Eiðis. Fulltrúar ráðuneytisins heimsóttu einnig Laxey og kynntu sér hugmyndir um Eyjagöng.
Nýr vinnubátur Vestmannaeyjahafnar, Léttir, hlaut formlega nafn sitt við athöfn þann 6. júní. Léttir er vinnubátur af gerðinni StanTug 1205 frá Damen, smíðaður árið 2017 og styrkir búnað og þjónustu hafnarinnar við dagleg verkefni hennar.
Menning og samstarf
Gestir frá Noregi og Póllandi heimsóttu Vestmannaeyjar í tengslum við samstarfsverkefni safnafólks og starfsfólks Sagnheima. Verkefnið tengist sögu okkar og menningu og lofar góðu fyrir áframhaldandi samstarf.
Nýkjörnir bæjarfulltrúar funduðu jafnframt með stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Fundurinn fór fram í Vestmannaeyjum og þar var farið yfir starfsemi samtakanna, samstarf og þau tækifæri sem felast í aukinni samvinnu.
100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar
Á þessu ári fagnar Landhelgisgæsla Íslands 100 ára afmæli. Í því samhengi er sérstaklega ánægjulegt að rifja upp sögu varðskipsins Þórs og tengsl þess við Vestmannaeyjar.
Saga Þórs og upphaf Landhelgisgæslunnar minna okkur á að stór þjóðarverkefni geta átt rætur í staðbundnu frumkvæði, samstöðu og ábyrgð. Vestmannaeyjar og Björgunarfélag Vestmannaeyja skipa mikilvægan sess í þessari sögu og af því erum við Eyjamenn afar stoltir.
Til stóð að varðskipið Þór yrði til sýnis í Vestmannaeyjum í tengslum við Goslokahátíð og athöfn 1. júlí en því þurfti að fresta vegna verkefna skipsins.
Goslokahátíð
Goslokahátíðin heppnaðist einstaklega vel og veðrið lék við hátíðargesti. Mikill fjöldi fólks tók þátt í fjölbreyttri dagskrá og ljóst er að hátíðin skipar áfram mikilvægan sess í menningarlífi Vestmannaeyja.
Goslokanefnd á mikið hrós skilið fyrir metnaðarfulla dagskrá og vel heppnaða framkvæmd hátíðarinnar.
Ýmsir fundir
Í júní voru fleiri fundir með:
- Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Bæjarráð fundaði með stjórninni um málefni HSU í Vestmannaeyjum þar sem sérstaklega var rætt um grunnþjónustu og mönnun hennar.
- Markaðsstofu Suðurlands og fulltrúum ferðaþjónustunnar um þróun og markaðssetningu áfangastaðarins Vestmannaeyja.
- Sveitarstjóra og atvinnufulltrúa í Norðurþingi um uppbyggingu atvinnulífs og hlutverk sveitarfélaga í þeim uppbyggingarfasa.
Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum. Fundargerðir má nálgast hér:
Það er afar ánægjulegt hversu vel hefur tekist til með þá þrjá stóru viðburði sem þegar hafa farið fram í sumar; fótboltamótin tvö og Goslokahátíð. Næsti stóri viðburður á dagskrá er Þjóðhátíð. Margt annað hefur einnig drifið á dagana þessar fyrstu vikur sumarsins sem ekki verður gert skil hér.
Njótum sumarsins.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri







