Fara í efni

Bæjarstjórn Vestmannaeyja

1627. fundur
3. júní 2026 kl. 14:00 - 14:00
Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Hildur Sólveig Sigurðardóttir forseti
Eyþór Harðarson varaforseti
Aníta Jóhannsdóttir aðalmaður
Anton Örn Björnsson aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir aðalmaður
Jón Þór Guðjónsson aðalmaður
Óskar Jósúason aðalmaður
Sæunn Magnúsdóttir aðalmaður
Kjartan Vídó Ólafsson varamaður
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Dagskrá
1.
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Málsnúmer 202604049
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi og starfsaldursforseti, setti fund og stjórnaði skv. 2. mgr. 4. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Vestmannaeyja nr. 991/2020. Óskaði hún bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir bæjarfulltrúi fór yfir skýrslu yfirkjörstjórnar dagsett 26. maí 2026 vegna sveitarstjórnarkosningar 16. maí sl.
2.
Kosning forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara
Málsnúmer 202605180
1. Kosning forseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030

2. Kosning varaforseta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030

3. Kosning tveggja skrifara og tveggja varaskrifara kjörtímabilið 2026-2030
  1. Hildur Sólveig Sigurðardóttir var réttkjörin forseti bæjarstjórnar með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa. Hélt hún því áfram stjórn fundarins og þakkaði það traust sem henni hafi verið sýnt.
  2. Eyþór Harðarson var réttkjörinn varaforseti með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
  3. Skrifarar bæjarstjórnar voru kosnir Óskar Jósúason og Jón Þór Guðjónsson en til vara Aníta Jóhannsdóttir og Arndís María Kjartansdóttir með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
3.
Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 202605181
A. Kosning í ráð, nefndir og stjórnir til eins árs.

1. Bæjarráð: Þrír aðalmenn, þrír til vara og einn áheyrnarfulltrúi og einn til vara.

Tillögur um eftirtalda fulltrúa:

Aðalmenn:
Eyþór Harðarson, formaður (D)
Trausti Hjaltason, varaformaður (D)
Jón Þór Guðjónsson (M)

Varamenn:
Aníta Jóhannsdóttir (D)
Óskar Jósúason (D)
Sæunn Magnúsdóttir (M)

Áheyrnarfulltrúi:
Arndís María Kjartansdóttir (E)

Varaáheyrnarfulltrúi:
Anton Örn Björnsson (E)


B). Kosning í ráð, nefndir og stjórnir til fjögurra ára.

1. Fjölskyldu- og tómstundaráð: Fimm aðalmenn og fimm til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Kjartan Vídó Ólafsson, formaður (D)
Hildur Rún Róbertsdóttir, varaformaður (E)
Þóra Guðný Arnarsdóttir (D)
Guðríður Jónsdóttir (D)
Jóhann Ingi Óskarsson (M)

Varamenn:
Magnús Stefánsson (D)
Guðný Rún Gísladóttir (D)
Hákon Tristan Bjarnason (D)
Jón Þór Guðjónsson (M)
Zindri Freyr Ragnarsson (E)


2. Fræðsluráð: Fimm aðalmenn og fimm til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Aníta Jóhannsdóttir, formaður (D)
Eyrún Haraldsdóttir, varaformaður (E)
Óskar Jósúason (D)
Rannveig Ísfjörð (D)
Sonja Andrésdóttir (M)


Varamenn:
Theódóra Ágústsdóttir (D)
Leifur Jóhannesson (D)
Herdís Hermannsdóttir (D)
Theódóra Ágústsdóttir (D)
Emma Karina Jakobsen (M)
Þorsteinn Ívar Þorsteinsson (E)


3. Umhverfis- og skipulagsráð: Fimm aðalmenn og fimm til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:


Aðalmenn:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður (D)
Linda Rós Sigurðardóttir, varaformaður (M)
Auðunn Haraldsson (D)
Ármann Halldór Jensson (D)
Jessý Friðbjarnardóttir (E)


Varamenn:
Ragnheiður Lind Geirsdóttir (D)
Gísli Stefánsson (D)
Arndís Bára Ingimarsdóttir (D)
Sonja Andrésdóttir (M)
Anton Örn Björnsson (E)

4. Framkvæmda- og hafnarráð: Fimm aðalmenn. og fimm til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Hannes Kristinn Sigurðsson, formaður (D)
Sæunn Magnúsdóttir, varaformaður (M)
Garðar Benedikt Sigurjónsson (D)
Guðbjörg Sól Sindradóttir (D)
Erlingur Guðbjörnsson (E)

Varamenn:
Grímur Gíslason (D)
Guðjón Rögnvaldsson (D)
Jason Stefánsson (D)
Jóhann Ingi Óskarsson (M)
Stefán Jónasson (E)

5. Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar.

Tillögur um eftirtalda aðila:

a) Yfirkjörstjórn: Þrír aðalmenn og þrír til vara.

Aðalmenn:
Jóhann Pétursson (D)
Ólafur Elísson (D)
Ásta Björk Guðnadóttir (M)


Varamenn:
Sigurbergur Ármannsson (D)
Ingólfur Jóhannesson (D)
Guðni Hjörleifsson (M)


b) Undirkjörstjórnir: Þrír aðalmenn og þrír til vara í hvora kjördeild.

Kjördeild 1

Aðalmenn:
Rósa Hrönn Ögmundsdóttir
Sigrún Alda Ómarsdóttir
Guðni Sigurðsson

Varamenn:
Erla Signý Sigurðardóttir
Súsanna Georgsdóttir
Rósa Sveinsdóttir

Kjördeild 2

Aðalmenn:
Sigurður Ingi Ingason
Fjóla Margrét Róbertsdóttir
Helga Sigrún Þórsdóttir

Varamenn:
Hildur Jóhannsdóttir
Guðný Hrefna Einarsdóttir
Víðir Þorvarðarson

C. Tilnefningar í stjórnir og samstarfsnefndir til fjögurra ára.

1. Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga: Sjö aðalmenn og sjö til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Eyþór Harðarson (D)
Trausti Hjaltason (D)
Aníta Jóhannsdóttir (D)
Óskar Jósúason (D)
Jón Þór Guðjónsson (M)
Sæunn Magnúsdóttir (M)
Arndís María Kjartansdóttir (E)

Varamenn:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (D)
Kjartan Vídó Ólafsson (D)
Rannveig Ísfjörð (D)
Ármann Halldór Jensson (D)
Jóhann Ingi Óskarsson (M)
Sonja Andrésdóttir (M)
Anton Örn Björnsson (E)

2. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga: Þrír aðalmenn og þrír til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Eyþór Harðarson (D)
Trausti Hjaltason (D)
Jón Þór Guðjónsson (M)


Varamenn:
Aníta Jóhannsdóttir (D)
Óskar Jósúason (D)
Sæunn Magnúsdóttir (M)

3. Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga; Einn aðalmaður og einn til vara.


Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmaður:
Eyþór Harðarson (D)

Varamaður:
Aníta Jóhannsdóttir (D)

4. Almannavarnarnefnd, sbr. 3079. fundur bæjarráðs og 1537. Fundur bæjarstjórnar.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Arndís Bára Ingimarsdóttir, skylduseta samkvæmt lögum.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Friðrik Páll Arnfinnsson, slökkviliðsstjóri
Davíð Egilsson, yfirlæknir heilsugæslu HSU
Adólf Þórsson, Björgunarfélagi Vestmannaeyja
Arnór Arnórsson, Björgunarfélagi Vestmannaeyja

Til vara eru staðgenglar embættismanna.

5. Fulltrúar Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands: Einn aðalmaður og einn til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmaður:
Guðjón Hjörleifsson (D)

Varamaður:
Auðunn Haraldsson (D)

6. Heilbrigðisnefnd Suðurlands: Einn aðalmaður og einn til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmaður:
Bjarni Ólafur Guðmundsson (D)

Varamaður:
Aníta Jóhannsdóttir (D)

7. Skólanefnd Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum: Tveir aðalmenn og tveir til vara.

Skipað var í nefndina árið 2025 og því næst skipað í hana árið 2029.

8. Stjórn Náttúrustofu Suðurlands: Þrír aðalmenn og þrír til vara.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Kjartan Vídó Ólafsson, formaður (D)
Ragnheiður Sveinþórsdóttir (D)
Guðni Hjörleifsson (M)


Varamaður:
Theódóra Ágústsdóttir (D)
Trausti Hjaltason (D)
Sigdór Yngvi Kristinsson M)

9. Stjórn Stafkirkju: Einn aðalmaður og einn til vara.

Skipað var í stjórnina árið 2023 og því næst skipað í hana árið 2027.

10. Öldungaráð: Sjö fulltrúar, þrír kosnir af sveitarstjórn, þrír tilnefndir af félagi eldri borgara og einn fulltrúi frá heilsugæslu auk varamanna.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Ragnheiður Lind Geirsdóttir, formaður (D)
Guðríður Jónsdóttir (D)
Þuríður Bernódusdóttir (M)

Varamenn
Elísabet Arnoddsdóttir (D)
Thelma Rós Tómasdóttir (D)
Guðni Hjörleifsson (M)

11. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks:Sjö fulltrúar, þrír kosnir af bæjarstjórn, þrír tilnefndir af hagsmunafélögum fatlaðs fólks og einn fulltrúi frá heilsugæslunni auk varamanna.

Tillögur um eftirtalda aðila:

Aðalmenn:
Herdís Hermannsdóttir (D)
Ármann Halldór Jensson (D)

Sonja Andrésdóttir (M)

Varamenn:
Kjartan Vídó Ólafsson (D)
Grétar Þór Eyþórsson (D)
Þuríður Bernódusdóttir (M)

D. Stjórnir skipaðar til eins árs.

1. Stjórn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf.: Fimm aðalmenn og tveir til vara.
Þann 29. apríl sl. skipaði bæjarstjórn stjórn Herjólfs ohf. fyrir starfsárið 2026-2027. Næsta skipan stjórnar fer fram við aðalfund félagsins vorið 2027.

E. Verkefnabundnar nefndir.

Tillögur um eftirtalda aðila:

1. Stjórn Eyglóar eignarhaldsfélags: Þrír aðalmenn og þrír til vara.
Aðalmenn:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður (D)
Eyþór Harðarson (D)
Erlendur Ágúst Stefánsson (M)

Varamenn:
Trausti Hjaltason (D)
Aníta Jóhannsdóttir (D)
Linda Rós Sigurðardóttir (M)
Kosningar í ráð og nefndir voru samþykktar með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
4.
Þóknun til fulltrúa í nefndum og ráðum á vegum Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 202605182
Tillaga um óbreytt fyrirkomulag er varðar grunneiningar og útreikninga þóknunar til fulltrúa í nefndum og ráðum á vegum Vestmannaeyjabæjar en með þeim útfærslubreytingum sem samþykktar voru á 1622. fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar þann 21. janúar 2026. Miðað við uppreiknaða þóknun nemur grunneining fyrir bæjarstjórn kr. 16.378 og kr. 20.844 fyrir fastanefndir. Nefndarlaun skulu áfram bundin launavísitölu og uppreiknuð tvisvar á ári, í júní og desember.
Tillaga um óbreytt fyrirkomulag grunneininga og útreikninga þóknunar með samþykktum breytingum á 1622. fundi bæjarstjórnar samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.

Tillaga um laun áheyrnarfulltrúa í bæjarráði samþykkt með níu samhljóða atkvæðum bæjarfulltrúa.
5.
Ráðning bæjarstjóra
Málsnúmer 202605183
Fyrir fundinum liggur ráðningarsamningur við Írisi Róbertsdóttur í starf bæjarstjóra næstu fjögur árin sem fylgdi með fundargögnum og liggur því eftirfarandi tillaga fyrir fundinum:

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkir að ráða Írisi Róbertsdóttur til heimilis að Búhamri 70 í Vestmannaeyjum í starf bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar. Fyrir fundinum liggur ráðningasamningur og felur bæjarstjórn formanni bæjarráðs að undirrita ráðningarsamning við bæjarstjóra.
Við umræðu um málið tóku til máls: Sæunn Magnúsdóttir og Eyþór Harðarson

Breytingartillaga frá bæjarfulltrúum M lista:

Þetta er fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar og við tökum hér sæti með umboð frá íbúum til að vinna að hagsmunum sveitarfélagsins. Fram undan eru mikilvæg verkefni og bæjarfulltrúar Miðflokksins hlakka til að eiga gott og málefnalegt samstarf við alla bæjarfulltrúa í þágu bæjarbúa.

Ein af fyrstu og mikilvægustu ákvörðunum nýrrar bæjarstjórnar er ráðning bæjarstjóra. Það er ákvörðun sem hefur veruleg áhrif á starfsemi sveitarfélagsins, starfsfmennþess og þá þjónustu sem íbúar njóta.

Að mati bæjarfulltrúa Miðflokksins er nú tímabært að ráðast í breytingar, ekki aðeins í skipan bæjarstjórnar heldur einnig í embætti bæjarstjóra. Undanfarið hafa komið fram fréttir af slæmum starfsanda og framkomu gagnvart starfsfólki. Þær upplýsingar falla að þeim áhyggjum og þeim orðrómi sem heyrst hefur um þónokkurt skeið. Við teljum því ekki rétt að halda áfram á sömu braut.

Við teljum að sveitarfélagið þurfi nýja forystu sem getur byggt upp traust, eflt samstarf og skapað jákvætt starfsumhverfi til framtíðar.

Af þeim sökum getum við ekki stutt ráðningu bæjarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins og leggjum þess í stað til að TraustiHjaltason verði ráðinn bæjarstjóri.


7 bæjarfulltrúar D og E lista greiddu atkvæði gegn breytingartillögunni en 2 bæjarfulltrúar M lista með og var hún því felld.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.


Tillaga um ráðningu og ráðningarkjör bæjarstjóra borin um til samþykktar. 5 bæjarfulltrúar D lista greiddu atkvæði með tillögunni, 2 bæjarfulltrúar M lista greiddu atkvæði á móti og 2 bæjarfulltrúar E sátu hjá. Tillagan var því samþykkt.


6.
Dagskrá bæjarstjórnarfunda 2026-2027
Málsnúmer 202605184
Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu að áætlun um dagsetningar bæjarstjórnarfunda frá júlí 2026 til júlí 2027.

1. júlí 2026 sem er síðasti fundur fyrir sumarfrí
Bæjarstjórn er í sumarleyfi í ágúst.
9. september sem er fyrsti fundur eftir sumarfrí.
4. nóvember en þá er fyrri umræða um fjárhagsáætlun.
2. desember en þá er seinni umræða um fjárhagsáætlun.
20. janúar
17. febrúar
17. mars og þá er fyrri umræða um ársreikning.
7. apríl þar sem seinni umræða er um ársreikning.
5. maí
2. júní
7. júlí sem er síðasti fundur fyrir sumarfrí.
Áætlun um dagsetningar bæjarstjórnarfunda samþykkt samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.
7.
Umræða um samgöngumál 2026
Málsnúmer 202605185
Opinn fundur Vegagerðarinnar og Vestmannaeyjabæjar var haldinn í Höllinni þriðjudaginn 2. júní sl., þar sem fulltrúar Vegagerðarinnar og innviðaráðherra fóru yfir stöðu mála í Landeyjahöfn og svöruðu fyrirspurnum fundargesta. Á fundinn mættu á milli 4- og 500 manns þrátt fyrir að sumarleyfistími sé hafinn og Landeyjahöfn opnuð og sýnir þær áhyggjur sem bæjarbúar hafa af stöðunni

Fyrr um daginn fundaði ný bæjarstjórn með innviðaráðherra og fulltrúum Vegagerðarinnar.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir því helsta sem fram kom í máli fulltrúa Vegagerðarinnar og innviðaráðherra á fundinum.

Þar kom fram að viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar væri áfram lykilforsenda þess að unnt væri að halda höfninni opinni og að nýir belgískir dýpkunaraðilar, Jan de Nuul, hæfu störf í september. Jafnframt kom fram að auknar væntingar væru bundnar við öflugri dýpkun og frekari útfærslu svonefndrar bufferdýpkunar en að fjármögnun dýpkunarverkefna væri jafnframt mikilvæg forsenda framgangs þeirra.

Enn fremur kom fram hjá ráðherra að Baldur væri varaskip fyrir Herjólf IV. Þá kom fram að Baldur fengi í B-haffæri í haust en í langtímaáætlunum væri gert ráð fyrir að tvö sambærileg skip sinni Vestmannaeyjum og Breiðafirði. Það myndi tryggja ásættanlegt varaskip fyrir Herjólf IV. Einnig að Herjólfur III yrði ekki tilbúinn fyrr en í september og ekki hefði enn verið tekin ákvörðun um framtíðarnýtingu skipsins.

Jafnframt var farið yfir stöðu rannsókna á varanlegri lausn fyrir Landeyjahöfn. Þar kom fram að unnið hefði verið að líkanagerð og greiningu á mögulegum breytingum á höfninni, þar á meðal á görðum, hafnarmynni og dýpkunarsvæðum, og að frekari niðurstaðna og skýrslu um næsta áfanga væri að vænta í haust. Samkvæmt þeirri tímalínu sem kynnt var er ekki gert ráð fyrir framkvæmdum fyrr en í fyrsta lagi árið 2030 en umhverfismat eitt og sér tekur, að óbreyttu, um 2–3 ár.

Á fundinum komu fram ríkar kröfur frá íbúum um að lögð yrði fram skýr og tafarlaus áætlun vegna næsta vetrar svo koma mætti í veg fyrir það ófremdarástand sem Eyjamenn hafa búið við undanfarna mánuði. Sérstaklega var kallað eftir skýrum svörum um varaskip, áframhaldandi nýtingu Herjólfs III, sem ætti að vera staðsettur í Vestmannaeyjum, og tryggar flugsamgöngur. Jafnframt var þrýst á innviðaráðherra að tryggja nauðsynlegt fjármagn til þessara verkefna. Þá var einnig gerð krafa um að rannsóknum og framkvæmdum í Landeyjahöfn yrði hraðað eins og kostur væri og að gerðar yrðu nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að umhverfismat tefði ekki framgang verkefnisins.

Kröfurnar væru nauðsynlegt viðbragð í kjölfar þeirrar óásættanlegu stöðu sem upp kom í samgöngum við Vestmannaeyjar í vor þegar dýpkun Landeyjahafnar gekk afar illa og annar rafmótor ferjunnar bilaði með þeim afleiðingum að siglingar til Þorlákshafnar gátu tekið allt að 6 klst. Ástandið skapaði verulegt óhagræði fyrir íbúa og olli tekjutapi fjölmargra fyrirtækja og hefur haft alvarleg áhrif á rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar sem sér ekki fyrir endann á. Bætt nýting á Landeyjahöfn er lykilforsenda í vaxtarmöguleikum Vestmannaeyja og aukinni verðmætasköpun fyrir samfélagið allt. 

Sameiginleg bókun bæjarstjórnar

Bæjarstjórn skorar á ríkisstjórn Íslands að grípa til aðgerða til að tryggja ásættanlegar samgöngur til Vestmannaeyja.

Til skemmri tíma er mikilvægt að

Tryggt verði nægjanlegt fjármagn til viðbótar dýpkunar strax.

Komið verði á ríkisstyrktum flugsamgöngum yfir lengra tímabil með auknum sætafjölda og tíðari ferðum strax næsta vetur.

Til staðar sé varaskip í landinu með haffæri til Þorlákshafnar (B skip)sem getur komið inn í áætlun með stuttum fyrirvara ef á þarf að halda sem uppfyllir þörf og hagsmuni samfélagsins.

Til lengri tíma er mikilvægt að

Fjármagn verði tryggt til að flýta rannsóknum, umhverfismati og framkvæmdum við Landeyjahöfn til að auka nýtingu Landeyjahafnar í samræmi við skýrslu DHI.

Hefja undirbúning að nýsmíði systurskips Herjólfs IV en samkvæmt samgönguáætlun er ferjufloti landsins kominn verulega til ára sinna og brýn þörf á endurnýjun.

Aðgerðir þessar eru nauðsynlegt viðbragð í kjölfar þeirrar óásættanlegu stöðu sem upp kom í samgöngum við Vestmannaeyjar í vetur og vor.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign.)
Eyþór Harðarson (sign.)
Aníta Jóhannsdóttir (sign.)
Óskar Jósúason (sign.)
Kjartan Vídó Ólafsson (sign.)
Arndís María Kjartansdóttir (sign.)
Anton Örn Björnsson (sign.)
Jón Þór Guðjónsson (sign.)
Sæunn Magnúsdóttir (sign.)

Við umræðu um málið tóku til máls: Jón Þór Guðjónsson, Kjartan Vídó Ólafsson, Eyþór Harðarson og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

8.
Íbúakosning 2026 um þróunarsvæðið M2
Málsnúmer 202601039
Forseti bæjarstjórnar fór yfir skýrslu kjörstjórnar dagsett 18. maí vegna íbúakosninga um þróunarsvæðið M2 dagana 4.-16. maí sl.

Spurt var:

Ertu fylgjandi því að Vestmannaeyjabær skoði möguleika á uppbyggingu á þróunarsvæðinu M2, sem fór undir hraun í gosinu 1973?

Á kjörskrá vegna íbúakosninga voru 3.538 kjósendur. Atkvæði greiddu 1.526, kjörsókn var því 43,13%

Atkvæðin féllu þannig: Já sögðu 1.053 eða 69% greiddra atkvæða Nei sögðu 459 eða 30,08% greiddra atkvæða Auðir seðlar voru 14 eða 0,92% greiddra atkvæða, Engir seðlar reyndust ógildir.
Samþykkt samhljóða að vísa niðurstöðu til kynningar í umhverfis- og skipulagsráði.
9.
Umhverfis og skipulagsráð Vestmannaeyja
Málsnúmer FUN1626
Liður 1, Malarvöllur og Langalág íbúðarbyggð og leikskóli skipulagsáætlanir (ÍB-5), liggur fyrir til staðfestingar. Um er að ræða auglýsingu á skipulagsáformum fyrir Malarvöll og Löngulág.


Liður 2, Strandvegur 63 - Umsókn um breytt deiliskipulag, liggur fyrir til staðfestingar. Um er að kynningu á vinnslustigi er varðar tillögu að breyttu deiliskipulagi.


Liðir 3-7 liggja fyrir til upplýsinga.

Liður 1 samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

Liður 2 samþykktur samhljóða með níu atkvæðum bæjarfulltrúa.

10.
Bæjarráð Vestmannaeyja 3259
Málsnúmer FUN1626
Liðir 1-8 liggja fyrir til upplýsinga.
11.
Framkvæmdar- og hafnarráð Vestmannaeyja - 337
Málsnúmer FUN1626
Liðir 1-9 liggja fyrir til upplýsinga.