Bæjarráð Vestmannaeyja
Aðalmenn:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður
Eyþór Harðarson
Jón Þór Guðjónsson
Varamenn:
Trausti Hjaltason
Aníta Jóhannsdóttir
Sæunn Magnúsdóttir
Fyrri hluti árs hefur verið þungur í rekstri Herjólfs ohf vegna þess að Landeyjahöfn hefur verið meira og minna lokuð frá seinni hluta janúar fram í maí og mikið um siglingar í Þorlákshöfn. Farþegum hefur fækkað um 32% og kostnaður aukist verulega.
Lögð voru fyrir bæjarráð dög að fjögurra mánaða rekstraryfirliti Vestmannaeyjabæjar. Samkvæmt yfirlitinu eru heildartekjur samstæðunnar fyrstu fjóra mánuði ársins um 8,8 % hærri en fjárhagsaætlun gerir ráð fyrir og heildarrekstrarkostnaður um 1,4% hærri en áætlunin.
Rekstrarafkoma A og B hluta fyrstu fjóra mánuði ársins er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
A hluti
Lögð voru fyrir bæjarráð fjögurra mánaða rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð. Samkvæmt yfirlitinu eru heildartekjur sveitarsjóðs fyrstu fjóra mánuðina um 9,7% hærri en fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir og heildarrekstrarkostnaður um 0,3% hærri en áætlunin.
Rekstrarafkoma A hluta fyrstu fjóra mánuði ársins er mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Ráðið þakkar upplýsingarnar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi dagskrá.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að skipa oddvita þeirra lista sem eru með fulltrúa í bæjarstjórn í stýrihópinn auk bæjarstjóra sem eru Eyþór Harðarson, Jón Þór Guðjónsson og Arndís María Kjartansdóttir. Sviðsstjórar stjórnsýslu- og fjármálasviðs og umhverfis- og framvæmdasviðs starfa með hópnum.
Ráðið þakkar upplýsingarnar. Stýrihópurinn mun fylgja málinu eftir fyrir hönd bæjarráðs.
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins og felur stjórnsýslunni að yfirfara gögn og undirbúa málið til frekari umfjöllunar á næsta fundi.
Bæjarráð ræddi drögin og fól sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að vinna þau áfram.
Ráðið þakkar yfirferðina.
Ráðið samþykkir breytingarnar samhljóða og vísar uppfærðum reglum til kynningar í fjölskyldu- og tómstundaráði.
Ráðið þakkar upplýsingarnar.