Fara í efni

Bæjarráð Vestmannaeyja

3261. fundur
29. júní 2026 kl. 12:00 - 13:57
Í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
Eyþór Harðarson formaður
Trausti Hjaltason varaformaður
Jón Þór Guðjónsson aðalmaður
Arndís María Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri
Drífa Gunnarsdóttir ritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 2027
Málsnúmer 202606031
Bæjarráð ræddi forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Bæjarráð leggur til að gjaldskrárhækkanir í A hluta styðji við verðbólgumarkmið Seðlabankans og verði ekki hærri en 2,5%. Þá er lagt til að frístundastyrkur hækki um 10.000 kr. frá og með næstu áramótum og svo áfram í skrefum á kjörtímabilinu.

Bæjarráð samþykkir samhljóða framkomnar tillögur og hvetur önnur sveitarfélög og ríkið að gera slíkt hið sama.

 

 

Bókun fulltrúa D lista

Á kjörtímabilinu 2026–2030 munum við vinna markvisst að því að hrinda í framkvæmd þeirri stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn kynnti fyrir kosningar. Jafnframt munum við halda áfram með þau verkefni sem þegar hafa verið sett af stað og fylgja þeim eftir af festu og ábyrgð. Stefnuskráin verður leiðarljós okkar í störfum sveitarstjórnar og munum við vinna að framgangi hennar í góðu samstarfi við íbúa, starfsfólk sveitarfélagsins, atvinnulíf og aðra hagaðila. Álögum á íbúaverður stillt í hóf.

Við munum leggja áherslu á reglulega upplýsingagjöf um framvindu helstu verkefna kjörtímabilsins og vinna af ábyrgð, gagnsæi og festu að áframhaldandi uppbyggingu öflugs, fjölskylduvæns og framsækins samfélags í Vestmannaeyjum.

Eyþór Harðarson (sign.)

Trausti Hjaltason (sign.)

2.
Málaferli vegna skemmdar á vatnslögninni NSL-3
Málsnúmer 202606033
Farið yfir stöðuna á málaferlum Vestmanannaeyjabæjar og Ljósleiðarans gegn VÍS tryggingum, Hugin og Vinnslustöðinni og HS Veitum til réttargæslu. Dómur ætti að liggja fyrir eigi síðar en 8. júlí nk.
3.
Kaup á almannavarnalögn NSL-4 og fjármögnun
Málsnúmer 202606034
Stýrihópur um vatnslagnir hélt fund þann 10. júní sl. og á þeim fundi var samþykkt að kaupa 20 mottur til að hlífa strengjum í sjónum fyrir núningi af almannavarnalögninni sem lögð verður í ágúst.

Farið yfir stöðuna á samtali við ríkið varðandi fjármögnun á almannavarnalögninni NSL-4.

Næsta greiðsla til SubSea 7 sem sér um flutning og útlangingu almannavarnalagnar NSL-4 er 98 m.kr. Þarf viðauka við fjárhagsáætlun vegna hennar þar sem ekki er gert ráð fyrir þessari upphæð í fjárheimildum fyrir árið 2026 vegna þess að bæjarstjórn telur að almannavarnir séu á hendi ríkisins og það sé ríkisins að greiða fyrir þær.

Viðaukinn er til afgreiðslu í lið 5.
4.
Vigtartorg - Svið
Málsnúmer 202509117
Mál sem vísað var til bæjarráðs af 338. fundi framkvæmda- og hafnarráðs.

Þann 18. júlí sl. voru opnuð tilboð í svið á Vigtartorgi og hljóðaði lægsta tilboðið upp á 52.858.436 sem er umfram fjárheimildir ársins og er því óskað eftir viðauka kr. 8 milljónir.


Viðaukinn er til afgreiðslu í lið 5.
5.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602032
Lagður fyrir til samþykktar viðauki 5 að upphæð 98 milljónir króna vegna greiðslu til SubSea 7 í tengslum við almannavarnalögn NSL-4. Um er að ræða fjárfestingarviðauka sem fjármagnaður er með handbæru fé.

Lagður fyrir til samþykktar viðauki 6 að upphæð 8 milljónir króna vegna sviðs á Vigtartorgi. Um er að ræða fjárfestingarviðauka sem fjármagnaður er með handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 5 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.


Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka 6 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

6.
Ægisgata 2
Málsnúmer 202403033
Framhald af 8. máli 3258. fundar bæjarráðs þann 20. apríl sl. Bæjarráð samþykkti þá 480 milljón króna tilboð í Ægisgötu 2 (2. og 3. hæð) sem var síðar staðfest af bæjarstjórn. Frestur til fjármögnunar er liðinn og óska tilboðshafar eftir tveggja vikna viðbótarfresti til að ljúka við fjármögnun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita umbeðinn tveggja vikna frest.

7.
Umræða um heilbrigðismál
Málsnúmer 202606155
Bæjarráð á fund með framkvæmdastjórn HSU síðar í dag til að ræða stöðu heilbrigðismála í Vestmannaeyjum.

Þá hefur heilbrigðisráðherra þekkst boð um heimsókn til Vestmannaeyja til að fara yfir stöðu heilbrigðismála í Eyjum ásamt því að ræða þær áskoranir sem liggja fyrir. Verið er að festa dagsetningu fyrir heimsóknina.
8.
Fasteignamat 2027
Málsnúmer 202606154
Nýtt fasteignamat fyrir árið 2027 liggur nú fyrir hjá Þjóðskrá. Fasteignamatið í Vestmannaeyjum hækkar um 3,1% milli áranna 2026 og 2027. Hækkar íbúðahúsnæði m.a. um 2,0% og atvinnuhúsnæði um 7,1% milli ára.

Með þessu breytist fasteignamatið á íbúðarhúsnæði minna en almennar verðlagsbreytingar.
Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og felur fjármálastjóra að vinna útreikninga til að byggja á um ákvörðun álagningarhlutfalls.

9.
Erindisbréf til fulltrúa í ráðum skv. bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar 2026
Málsnúmer 202606149
Farið yfir drög að erindisbréfi fyrir fulltrúa í bæjarráði.

Jafnframt voru erindisbréf fulltrúa annarra fastanefnda lögð fram en þau hafa farið til kynningar í nefndunum. Erindisbréfin eru unnin í samræmi við bæjarmálasamþykkt, sem samþykkt var árið 2020 og viðauka IV með samþykktinni.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við erindisbréfin og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

10.
Siðareglur kjörinna fulltrúa Vestmannaeyjabæjar
Málsnúmer 201505010
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fór yfir ábendingar starfsfólks Ráðhúss í tengslum við opinbera umræðu um vinnustaðinn og áhrif hennar á starfsfólk og starfsumhverfi. Einnig fór sviðsstjóri yfir niðurstöður reglubundinna mannauðskannana sem sýna almennt góða starfsánægju hjá Vestmannaeyjabæ.
Bæjarráð telur mikilvægt að málefni starfsmanna og einstaka vinnustaða sveitarfélagsins fari í viðeigandi stjórnsýslulegan farveg og hvetur bæjarfulltrúa og aðra nefndarmenn til að kynna sér siðareglur kjörinna fulltrúa. Forseti bæjarstjórnar hefur yfirfarið siðareglurnar og munu breytingarnar liggja fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar til staðfestingar.

11.
Prókúruumboð
Málsnúmer 202606013
Lögð fram tillaga um prókúruumboð með vísan til 4. mgr. 55. gr. sveitartjórnarlaga nr. 138/2011 sem heimilar bæjarstjóra að veita sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, Drífu Gunnarsdóttur umboð til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarráðs og/eða bæjarstjórnar þarf til.
Bæjarráð gerir ekki athugsemd við tillöguna og vísar henni til bæjarstjórnar.

12.
Heimsókn forsætisráðherra 26. júní 2026
Málsnúmer 202606180
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra sótti Vestmannaeyjar heim þann 26. júní til að kynna sér atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu í tengslum við Atvinnustefnu fyrir Ísland. Átti hún m.a. fund með fulltrúum Vestmannaeyjabæjar þar sem farið var yfir mikilvægi þess að byggja stórskipakant í Eyjum, ekki bara fyrir Vestmannaeyjar heldur allt landið. Einnig kynnti hún sér starfsemi Laxeyjar og Eyjaganga í tengslum við Atvinnustefnuna.
13.
Erindi um Hótel við Hásteinsgryfju
Málsnúmer 202605004
Framhald af 9. máli 3260. fundar bæjarráðs þann 8. júní sl. Farið var yfir stöðu mála.
Málið er enn í vinnslu og kemur fyrir bæjarráð þegar nánari gögn liggja fyrir.
Viðhengi
Erindi ÞJ
14.
Leigusamningur við World Class byggður á sérleyfissamningi
Málsnúmer 202606157
Leigusamningur Vestmannaeyjabæjar og Lauga ehf. vegna núverandi aðstöðu í íþróttahúsi lagður fram til kynningar. Samningurinn er í samræmi við ákvæði sérleyfissamnings.
15.
Vinnutími starfsmanna í leikskólum
Málsnúmer 202603116
Farið yfir tillögur að aðgerðum frá sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs varðandi uppsöfnun starfsmanna í leikskóla. Leggur hann til að vinnuvika starfsmanna leikskólans, sem eru í Drífanda/Stavey, verði heimiluð 37 klukkustundir á viku og er þá um að ræða uppsöfnun um 1 klukkustund á viku. Með því er uppsöfnun þessara starfsmanna 6-7 dagar aukalega við 30 orlofdaga á ári sem hægt verður að nýta á skráningardögum leikskólanna.
Ráðið samþykkir samhljóða að heimila 37 stunda vinnuviku hjá starfsfólki leikskóla sem er í Stavey/Drífanda.

16.
Beiðni um breytingu á bæjarmálasamþykkt vegna áheyrnarfulltrúa
Málsnúmer 202606173
Tekið fyrir mál sem vísað var til bæjarráðs af 330. fundi bæjarráðs þann 26. júní sl. Fjölskyldu- og tómstundaráð vísar því til bæjarráðs að gera breytingar á bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar þannig að ráðinu sé heimilt að veita ÍBV héraðssambandi áheyrnarfulltrúa í nefndinni þegar fjallað er þar um málefni íþrótta.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að setja umbeðið ákvæði um áheyrnarfulltrúa í bæjarmálasamþykkt og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að undirbúa málið fyrir bæjarstjórn.
17.
Sumarstörf 2026
Málsnúmer 202606151
Farið var yfir stöðu sumarstarfa hjá Vestmannaeyjabæ. Mikil aðsókn hefur verið í sumarstörfin á þessu ári og hefur fjöldi ráðinna sumarstarfsmanna aldrei verið meiri. Enn eru umsækjendur á biðlista eftir starfi. Ekki er gert ráð fyrir jafn mikilli eftirspurn eftir sumarstörfum í fjárheimildum ársins og því er óskað eftir afstöðu bæjarráðs til þess hvort Vestmannaeyjabær skuli ráða fleiri í sumarstörf en þegar hefur verið gert.
Bæjarráð telur ekki þörf á að bæta við frekari fjármagni í málaflokknum.

18.
Erindi frá Ferðamálasamtökum Vestmannaeyja vegna samstarfs um markaðssetningu Vestmannaeyja
Málsnúmer 202603035
Jón Þór Guðjónsson vék af fundi í málinu.

Drög að endurnýjuðum samstarfssamningi milli Vestmannaeyjabæjar og Ferðamálasamtakanna um markaðssetningu lögð fram.
Bæjarráð fór yfir drög að samningi og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að klára samninginn í samræmi við umræður á fundinum og fylgja verklagi undanfarinna ára.

19.
Goslokahátíð 2026
Málsnúmer 202606150
Erna Georgsdóttir og Súsanna Georgsdóttir kynntu dagskrá Goslokahátíðar.
Ráðið þakkar kynninguna og hvetur bæjarbúa til að taka þátt í hátíðinni.

21.
Trúnaðarmál lögð fyrir bæjarráð 2026
Málsnúmer 202606037
Trúnaðarmál eru færð í sérstaka fundargerð trúnaðarmála.