Fara í efni

Frístund

Opnunartími í Frístund er frá 12:30-16:30. Heilsdagsvistun er starfrækt frá því að skóla lýkur á daginn og til kl. 16.30.
Forstöðukona er Sigurleif Kristmannsdóttir. Netfangið hennar er  Sigurleif@grv.is og símanúmerið er 488-2240.

Lengd viðvera eftir skóla

  • Foreldrum barna í 1. - 4. bekk gefst kostur á að hafa börn sín í lengdri viðveru eftir hefðbundinn skólatíma.
  • Fötluð börn og börn í 1. bekk eru í forgangi. Forráðamenn fatlaðra barna í 5. – 10. bekk geta sótt um sértækt úrræði fyrir börn sín þar sem áhersla verður lögð á einstaklingsmiðuð úrræði.

Opnunartími er eftir því að hefðbundnum skólatíma lýkur eða frá 12:30-16:30
Heilsdagsvistun er þegar skóli er lokaður frá 7:45-16.30

Foreldrar ráða hve mikið af tímanum þeir nýta sér, en þeir þurfa að skrá og skila inn skipulagi yfir hvernig þeir ætla að nýta hann þegar þeir hafa séð hvernig skóladagur barna þeirra lítur út. Ef skipulag breytist þarf að láta vita um það með góðum fyrirvara.

Greitt er mánaðargjald fyrir þessa þjónustu auk kostnaðar við síðdegishressingu. 
Frístundaverið er stafrækt í Hamarsskóla. Gjaldskrá Frístund

Umsókn um frístund er í gegnum íbúagátt 

Dvalar- og matargjöld eru innheimt fyrirfram í upphafi hvers mánaðar.

Vestmannaeyjabær veitir systkinaafslátt sem gildir milli daggæslu í heimahúsi, leikskóla og/eða frístundavers. Sækja skal um systkinaafslátt í íbúagátt 

Vestmannaeyjabær býður upp á sumarúrræði fyrir börn í 1. til 4. bekk. 
Boðið er upp á þemaskiptar vikur með leikjum, íþróttum, tómstundum, sprelli og fjöri í samvinnu við íþrótta- og tómstundafélög. 
Fjörið er frá kl. 9 – 16 og hægt að velja hálfan dag eða heilan. 

Forráðamenn barns eru þeir aðilar sem fyrst og fremst bera ábyrgð á uppeldi þess. Í starfsemi frístundavers er rík áhersla lögð á samstarf við forráðamenn.
Frístundaverið leggur einnig áherslu á gott samstarf við grunnskólann, tónlistarskólann og aðra íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.