Tillaga að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja, 2. áfangi við Strandveg 51 (Tölvun)
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 11. júlí 2024 að auglýsa tillögu að breyttu á Deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja, 2. áfangi, aulgýst skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í meginatriðum í stækkun byggingarreits, auknu byggingarmagni og viðbættri 4. hæð á lóð við Strandveg 51. Grunnflötur byggingarreits stækkar og hámark heildar byggingarmagsn eykst frá 849,2 m2 í 1426 m2.
Hámarksfjöldi íbúða verður 8 íbúðir. Krafa er um atvinnustarfsemi á jarðhæð við Strandveg en við Herjólfsgötu er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyir allt að 4 bíla. Samkomulag hefur verið gert um almenna notkun af bílastæðum við Strandveg 50 utan dagtíma.
Þakform er með breyttum hætti, var mænisþak en verður hallandi eða flatt þak. Skilgreind er hámarks vegghæð 3 hæðar 9,5 m. Fjórða hæð skal vera inndregin um að lágmarki um 1,2 m og verður hámarkshæð 4 hæðar 14 en var 14,5. Gert er ráð fyrir inndregnum hliðum á suður og austurhlið hússins, auk þess sem uppbrot verður skapað með útdregnum reitum á 2. og 3. hæð.
Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja að Kirkjuvegi 50, á skipulagvefsjá sveitarfélagsins og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar
Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 29. ágúst 2024 í afgreiðslu Ráðhúss, á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.