25. ágúst 2022

Tillaga að breyttu Deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja

Bæjarráð Vestmannaeyja samþykkti 27. júlí 2022 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir breytingu á Deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja, auglýst skv. 1. Mgr. 43. Gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Reitur deiliskipulags breytingarinnar afmarkast af Miðstræti, Bárustíg, Vestmannabraut og Kirkjuvegi.

Meðal annars er gert er ráð fyrir:

  • Nýjum veg frá Vestmannabraut að Miðstræti
  • Stækkun viðbyggingar hótels við Vestmannabraut 28
  • Fjórum nýjum byggingum (hæð með risi)
  • Nýjum almennum bílastæðum, ofl.

Skipulagsgögn eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 8. ágúst til og með 19. september 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum við tillöguna skal skila skriflega til og með 19. september 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is