3. maí 2021

Nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæði AT-3 við flugvöll í Vestmannaeyjum

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 15. apríl 2021 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir athafnasvæði AT-3 við flugvöll skv. 1 mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir 17 lóðum fyrir létta atvinnu- og athafnastarfsemi.

Lögð er áhersla á fjölbreytt framboð lóða; lóðir eru frá 435 – 1400 m2 og stærð byggingareita frá 240 – 1200 m2. Á deiliskipulagssvæðinu eru byggingarreitir staðsettir, meðfram Dalavegi og skerma þannig sýn inn á athafnasvæði lóðanna. Settir eru ítarlegir skilmálar til að stuðla að snyrtilegri ásýnd svæðisins t.a.m. um frágang lóða, umgengni, ásýnd girðinga, afmörkun geymslusvæða og lýsingu.

GREINARGERÐ

UPPDRÁTTUR

Skipulagsgögn eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði á Skildingavegi 5, frá og með 1. maí 2021 til og með 12. júní 2021 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins (http://vestmannaeyjar.is/thjonusta/skipulag/skipulagsmal-i-kynningarferli).

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 12. júní 2021 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is


Mynd1_1619782720496

 

Mynd2_1619782727183

Mynd3_1619782731788