Fara í efni

Skólaskrifstofa

Yfirmaður: Helga Sigrún Þórsdóttir deildarstjóri fræðslu- og uppeldismála
Netfang er helgasigrun@vestmannaeyjar.is
Sími 488-2000

Skólaskrifstofa starfar í umboði fræðsluráðs. Helstu verkefni skólaskrifstofu taka til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og frístundavers.
Hér til hliðar má finna hlekki inn á ýmsa verkferla sem skólaþjónustan hefur til viðmiðunar í starfi sínu.

Starfsfólk:

Jafnframt hefur sérfræðiþjónustan aðgang að ráðgjöf frá félagsráðgjöfum og ráðgjöfum félagsþjónustu sem og aðkeyptri þjónustu talmeinafræðings.

Hlutverk og verkefni skólaskrifstofu:

  • Annast stjórnsýslu, rekstur og þjónustu vegna uppeldis- og menntamála bæjarfélagsins
  • Sinnir mati og eftirliti með gæðum skólastarfs sbr lög nr. 91/2008 , og fylgir matinu eftir þannig að það leiði til umbóta í skólastarfi
  • Hefur umsjón með rekstri, áætlanagerð og sérfræðiþjónustu fyrir leikskóla, grunnskóla og Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
  • Sér um rekstur, eftirlit og mat á starfsemi frístundavers, sumarúrræða, gæsluvallar og eftirlit með daggæsluúrræðum.
  • Annast sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla Vestmannaeyja og aðstoðar skólana við þróunarstarf, að skipuleggja fræðslufundi, kennaranámskeið o.fl.