Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:
- Tillögur og umsóknir um starfslaun ber að skila til bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar.
- Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
- Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.
- Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
- Umsóknarfrestur er til og með 10.apríl 2015. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta.
Umsóknum og tillögum skal skila ekki seinna en 10. apríl nk. á neðangreind netföng eða í Ráðhús Vestmannaeyja, og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.
Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa á www.vestmannaeyjar.is
Nánari upplýsingar veita Margrét Ingólfsdóttur (margret@vestmannaeyjar.is) og Rut Haraldsdóttir (rut@vestmannaeyjar.is) í síma 4882000.
Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar