Fara í efni
18.03.2014 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2014

Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2014.  Samkvæmt úthlutunarreglum frá 24. Nóvember 2011.  
Deildu
  Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:

 

-          Tillögur og umsóknir um starfslaun ber að skila til bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar.

-          Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.  

-          Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.

-          Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.

-          Umsóknarfrestur er til og með 14.apríl 2014.  Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar á sumardaginn fyrsta. 

 

 

Umsóknum og tillögum skal skila til bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar ekki seinna en  14. apríl nk. og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.

Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa á www.vestmannaeyjar.is

 

Nánari upplýsingar veita Kristín Jóhannsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi og Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í síma 4882000.

 

Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar