Fara í efni
02.04.2012 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2012

Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir tillögum og umsóknum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2012.
Deildu

Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:
 
-          Sækja skal um starfslaun til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar.
-          Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagsamtökum.   
-          Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.
-          Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
-          Umsóknarfrestur er til og með 13.apríl 2012. Fræðslu- og menningarráð velur úr framkomnum tillögum og umsóknum og úthlutar á sumardaginn fyrsta. 
 
Umsóknum skal skila til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar ekki seinna en  13. apríl nk. og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.
Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa á www.vestmannaeyjar.is
 
Nánari upplýsingar veita Kristín Jóhannsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi og Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs í síma 4882000.
 
Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar