Fara í efni
09.03.2011 Fréttir

Starfslaun bæjarlistamanns 2011

Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar auglýsir eftir umsóknum um starfslaun fyrir bæjarlistamann árið 2011.
Deildu
Í gildandi reglum um úthlutun starfslaunanna segir m.a.:
 
-          Sækja skal um starfslaun til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyjabæjar. Að jafnaði koma þeir einir til greina sem bæjarlistamenn sem búsettir eru í Vestmannaeyjum.
-          Listamaður skal í umsókn sinni gera grein fyrir því, sem hann hyggst vinna. Hann skal einnig gera grein fyrir því hvenær hann ætli að vinna að verkinu.
-          Umsóknarfrestur er til og með 05.april 2011. Fræðslu- og menningarráð velur úr framkomnum umsóknum og úthlutar á Sumardaginn fyrsta. 
 
 
Umsóknum skal skila til fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeybæjar fyrir 05.april nk. og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.
Reglurnar í heild er hægt að fá afhentar á bæjarskrifstofunni í Ráðhúsinu eða lesa á www.vestmannaeyjar.is
 
Nánari upplýsingar veita Kristín Jóhannsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi og Rut Haraldsdóttir framkvæmdarstjóri stjórnsýslusviðs í síma 4882000.
 
Fræðslu- og menningarráð Vestmannaeyjabæjar