Fara í efni
16.10.2019 Fréttir

Skólaliði óskast til afleysinga í Grunnskóla Vestmannaeyja

Þessi staða sem um ræðir er afleysing, viðkomandi þarf að geta komið til vinnu eftir þörfum og oft með litlum fyrirvara. Afleysing getur verið bæði i Barna –og Hamarsskóla.

Deildu
Starf skólaliða felst m.a í aðstoð við nemendur í leik- og grunnskóla, gæslu og þrifum á skólahúsnæði.

Áhugi og reynsla á að vinna með börnum og reynsla við ræstingarstörf er kostur. Hreint sakavottorð er skilyrði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags.

Vestmannaeyjabær hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488-2202.

Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í afgreiðslu bæjarskrifstofa og á vestmannaeyjar.is. Umsóknum ber að skila í afgreiðslu bæjarskrifstofa eða á rafrænu formi á netfangið annaros@grv.is

Öllum umsóknum verður svarað.