Fara í efni
03.09.2020 Fréttir

Móttökustöð úrgangsefna í Vestmannaeyjum

Forkynning deiliskipulags og kynning frummatsskýrslu.

Deildu
Terra sorpa sorphirða

Vestmannaeyjabær kynnir drög að deiliskipulagi fyrir lóð móttökustöðvar úrgangsefna við Eldfellsveg. Einnig er til kynningar frummatsskýrsla vegna byggingar sorporkustöðvar á sama svæði.

Skipulagstillagan er sett fram með uppdrætti og greinargerð og er nú þegar aðgengileg hjá umhverfis-og framkvæmdasviði sem staðsett er á Skildingavegi 5 og einnig á kynningarsíðu skipulagsmála.

Óskað er eftir ábendingum um innihald tillögunnar meðan hún er enn á vinnslustigi og mun skipulagsráð vinna úr þeim áður en tillagan verður fullgerð og samþykkt til formlegrar auglýsingar. Meðal áhugaverðra viðgangsefna í nýju deiliskipulagi er ný sorporkustöð, ný aðkoma að lóðinni og endurskipulagning gámasvæðis fyrir úrgang. Óskað er eftir því að ábendingar berist í síðasta lagi 9. október á netfang bæjarins 900skipulag@gmail.com eða til umhverfis-og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5.

Þau sem vilja kynna sér tillögurnar frekar eru hvött til að mæta á opinn kynningarfund 17. september kl. 16:00 í Safnahúsinu. Takmarkað sætaframboð er á fundinum (20 gestir) og er áhugasömum bent á að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagny@vestmannaeyjar.is Fundinum verður streymt á facebooksíðu Vestmannaeyjabæjar. Á fundinum verða kynningar á skipulagstillögunni og frummatsskýrslu fyrir móttökustöðina, sbr. lög nr. 106/2000, vegna mats á umhverfisáhrifum brennslustöðvarinnar, en skýrslan ásamt fylgigögnum liggur frammi til kynningar hjá Bæjarskrifstofu Vestmannaeyja, Þjóðarbókhlöðunni og Skipulagsstofnun. Frétt um kynningu frummatsskýrslu er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar, https://www.skipulag.is/skipulagsstofnun/mal-i-kynningu/safn/brennslustod-i-vestmannaeyjum og þar er sagt frá því að ábendingar vegna hennar skulu berast til Skipulagstofnunar. Auk þess má finna nánari fylgigögn sem tengjast verkefninu á heimasíðu Alta https://kynning.alta.is/brennslustod.

Skipulagsfulltrúi Vestmannaeyja