Fara í efni
20.12.2010 Fréttir

Íbúavefur Vestmannaeyjabæjar á www.vestmannaeyjar.is

Um næstu áramót mun Vestmannaeyjabær hætta að senda út greiðsluseðla á allar útsendar kröfur á vegum Vestmannaeyjabæjar. .
Deildu
Seðlar verða þó áfram sendir til þeirra einstaklinga sem eru 65 ára og eldri. 
Hægt er að óska sérstaklega eftir því að fá sendan greiðsluseðil og þarf þá að hafa samband við innheimtufulltrúa hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488-2000 eða á netfangið anna@vestmannaeyjar.is
Hægt verður að skoða yfirlit yfir alla reikninga og greiðslur á íbúavefnum á www.vestmannaeyjar.is
Bæjarbúum og viðskiptavinum Vestmannaeyjabæjar hefur verið sent bréf  þar sem fram kemur aðgangur og lykilorð inn á viðkomandi  svæði.
Íbúum stendur áfram til boða að greiða flestar reglubundnar greiðslur til Vestmannaeyjabæjar með öruggum og auðveldum hætti t.d. með mánaðarlegri færslu af kreditkorti, boðgreiðslum og í gegnum greiðsluþjónustu banka.
Með von um jákvæð viðbrögð og áframhaldandi gott samstarf
Rut Haraldsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.