· Íþróttakennara í 70 – 90% starfshlutfall
· Umsjónarkennara bæði á eldra og yngra stigi í 70 – 90% starfshlutfall
· Kennara í afleysingar í íþróttakennslu og almenna kennslu
Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf sem grunnskólakennari, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf, með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ. Starfsmaður þarf að geta hafið störf 15. ágúst n.k.
Umsóknarfrestur er til 8. maí nk. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í afgreiðslu bæjarskrifstofa og á vestmannaeyjar.is. Umsóknum ber að skila í afgreiðslu bæjarskrifstofa eða á rafrænu formi á netfangið sigurlas@grv.is. Þeim þarf að fylgja afrit af prófskírteini/leyfisbréfi.
Nánari starfslýsingu og upplýsingar má nálgast hjá:
Sigurlás Þorleifsson, skólastjóri, sigurlas@grv.is s: 8684350.
Ingibjörg Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri, ingibjorg@grv.is s: 8942826
Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir, aðstoðarskólastjóri, olaheida@grv.is s: 8693439
Sigurlás Þorleifsson, skólastjóri