Fara í efni
24.01.2012 Fréttir

Fasteignagjöld fyrir árið 2012

 Á næstu dögum munu álagningarseðlar vegna fasteignagjalda fyrir árið 2012 berast til bæjarbúa. 
Deildu
Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur af gjöldunum ef greitt er fyrir mánudaginn 6. febrúar n.k.  Þeir sem ætla að staðgreiða vinsamlegast greiðið inn á reikning í Sparisjóði Vestmannaeyja nr. 1167-26-90 kt. 690269-0159. Aðrar upplýsingar vegna fasteignagjaldanna eru veittar í þjónustuveri Ráðhússins sími 488-2000.
 Álagningin er einnig birt rafrænt á www.island.is og íbúagátt  á www.vestmannaeyjar.is
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignasgjöldum
Lækkunin er reiknuð sjálfkrafa í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og Ríkisskattstjóra. Við ákvörðun afsláttar til ellífeyrisþega og öryrkja er stuðst við skattaframtöl ársins 2010 samkvæmt gögnum RSK . Ef miklar breytingar hafa orðið á efnahagslegum högum einstaklinga milli áranna 2010 og 2011 er bent á að hægt er að óska eftir endurmati á fasteignagjöldunum í ljósri breyttra aðstæðna.  Skila þarf inn skattaframtali ársins í þjónustuver Ráðhússins þegar framtalið liggur fyrir.
 
Tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega eru sem hér segir: 
1. Fyrir einstakling:
a. Brúttótekjur 2010 allt að 2.782. þús. kr. 100% niðurf.
b. Brúttótekjur 2010 allt að 3.292 þús. kr. 70% niðurf.
c. Brúttótekjur 2010 allt að 3.738 þús. kr. 30% niðurf.
 
2. Fyrir hjón, sem bæði eru ellilífeyrisþegar:
a. Brúttótekjur 2010 allt að 3.347 þús. kr. 100% niðurf.
b. Brúttótekjur 2010 allt að 4.044 þús. kr. 70% niðurf.
c. Brúttótekjur 2010 allt að 4.585 þús. kr. 30% niðurf.
Við mat á niðurfellingu fasteignaskatts af eigin íbúð 75% öryrkja, sem þeir búa í, skal hafa hliðsjón af fyrrgreindum reglum.
 
3. Sorphirðu-/sorpeyðingargjald, holræsagjald og lóðarleiga verði fellt niður eða lækkað í samræmi við ofangreindar reglur hvað varðar eigin íbúð ellilífeyrisþega og 75% öryrkja, sem þeir svo sannarlega búa í.