28. janúar- 8. febrúar
Sat stjórnarfund Lánasjóðs sveitarfélaga, en Vestmannaeyjabær er stór eigandi í sjóðnum. Stjórn sjóðsins fundar að jafnaði einu sinni í mánuði. Vestmannaeyjabær er ekki með lán hjá sjóðnum, né öðrum fjármálastofnunum.

Ég og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs funduðum með Gallup þar sem farið var yfir þjónustukönnun 2025 og niðurstöður Vestmannaeyjabæjar. Niðurstöðurnar voru í framhaldi kynntar í bæjarráði og í frétt sem birt var á heimasíðu bæjarins. Hægt er að sjá fréttina hér.
Undirbúningur fyrir bæjarráð. Bæjarráð heldur sameininglega undirbúningsfundi með sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs fyrir fundi ráðsins.
Vikulegur sviðsstjórafundur þar sem framkvæmdastjórn sveitarfélagsins fer yfir helstu mál og verkefni sem eru í gangi.
Bæjarráð fundaði með fulltrúum Vegagerðarinnar vegna stöðunnar í Landeyjahöfn og útboðs sem var í gangi varðandi dýpkun hafnarinnar. Ríkið er eigandi Landeyjahafnar og er því verkaupi að dýpkuninni. Ekki er komin niðurstaða frá Vegagerðinni um hver fær dýpkunina til næstu 3 ára.
Á miðvikudegi fundaði bæjarráð. Farið var yfir umsögn um samgönguáætlun og önnur samgöngumál og kom framkvæmdastjóri Herjólfs á fundinn. Einnig var m.a. farið yfir sölu eigna, dagvistunar- og heimgreiðslumál. Hér má sjá fundargerðina.

9. febrúar - 15.febrúar
Bæjarstjórn fundaði með fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar. Forstjóri stofnunarinnar og forstjóri Raforkueftirlitsins voru með í för. Á fundinum var farið yfir stöðuna í Eyjum varðandi orkukostnað, aðgengi að orku, niðurgreiðslur og orkuflutning. Einnig voru orkuskipti og gjaldskrármál til umræðu.

Sat fund, ásamt fleirum, með fulltrúm frá HS Veitum um stöðu vatnsmála í Eyjum.
Sviðsstjórnarfundur er á sínum stað í hverri viku með framkvæmdastjórn og nú er m.a. verið að undirbúa ársreikning.
Ég flutti stutt erindi um stöðu menntunar í Vestmannaeyjum á menntadegi atvinnulífsins þar sem ég sagði m.a. frá góðum árangri FÍV í iðn- og verknámi og þeirri miklu áherslu sem Vestmanneyjabær setur á fræðslumál. Hér er tengill á upptöku af fundinum.

Aukafundur var haldinn í bæjarráð til að staðfesta bátakaup Vestmanneyjahafnar eftir að framkvæmda- og hafnarráð ákvað að fjárfesta í litum dráttarbát. Það er einkar ánægjulegt og liður í að geta sinnt auknum umsvifum betur. Hér má sjá fundargerðina.
Í vikunni fylgdi ég eftir umsögn Vestmannaeyjabæjar um samgönguáætlun fyrir 2026-2040 og aðgerðaráætlun frá 2026-2030 fyrir umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Vestmannaeyjabær geri alvarlegar athugasemdir við áætlunina. Umsögnina er hægt að lesa hér.
Mætti á athöfn á Hilton þar sem FÍV fékk viðurkenningu fyrir að vera í 3. sæti sem stofnun ársins.
Sat morgunfund með Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna breytinga á löggjöf í kringum heilbrigðiseftirlitin. Þau verkefni hafa verið samstarfsverkefni sveitarfélaga en nú liggur fyrir frumvarp um breytingar.

Fór á mjög fróðlega og skemmtilega sýningu í Sagnheimum sem ber yfirskriftina Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma. Góð mæting var á sýninguna og verður næsta sýning 28. febrúar nk.
Síðast en ekki síst fór ég í Höllina og tók þátt í „Lífið er núna“ með því að perla armband. Þetta er frábært landsframtak og hefur Krabbameinsfélagið í Eyjum haldið utan um það hér í Eyjum með miklum sóma.

Íris Róbertsdóttir
bæjarstjóri.