Fara í efni
05.02.2026 Fréttir

Yfir 90% íbúa eru ánægð með Vestmannaeyjar sem búsetustað

Þjónustukönnun Gallup var framkvæmd dagana 17. nóvember 2025 til 13. janúar 2026. Markmið hennar er að meta ánægju með þjónustu í stærstu sveitarfélögum landsins, bera saman niðurstöður og fylgjast með þróun milli ára.

Deildu
Goslok VÆB Krakkar

Niðurstöður könnunarinnar sýna að yfir 90% íbúa eru ánægð með Vestmannaeyjar sem stað til að búa á, og raðast sveitarfélagið þar í 2.–4. sæti í samanburði við önnur sveitarfélög. Mest er ánægjan með þjónustu við fatlað fólk og eldri borgara, þar sem Vestmannaeyjabær er í 1. sæti í báðum flokkum. Þá er bærinn í 2.–3. sæti þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur.

Vestmannaeyjabær er yfir landsmeðaltali í öllum þjónustuþáttum, að sorphirðu undanskilinni, þar mælist talverð óánægja og marktæk lækkun frá fyrra ári.

Bæjarráð fór yfir könnunina á fundi sínum í vikunni og lýsti yfir ánægju með niðurstöðurnar enda, líkt og undanfarin ár, kemur Vestmannaeyjabær heilt yfir afar vel út úr könnuninni. Bæjarráð telur mikilvægt að skoða sorpmálin og gera úrbætur þar.

Ekki verður boðað til sérstaks íbúafundar um niðurstöðurnar að þessu sinni, þar sem íbúafundur vegna íbúakosningar fer fram á næstunni. Niðurstöðurnar eru aðgengilegar hér

Ábendingar um niðurstöður þjónustukönnunarinnar eða það sem mætti betur fara má senda á netfangið: thjonustukonnun@vestmannaeyjar.is