Fara í efni
04.07.2023 Fréttir

Breytt deiliskipulag – Miðbæjarskipulag, 2 áfangi, Standvegur 51 (Tölvun)

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkti þann 22. júní 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á Deiliskipulagi Miðbæjar, 2 áfangi, auglýst skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deildu

Breytingin felst í meginatriðum í stækkun byggingarreits, auknu byggingarmagni og viðbættri 4. hæð á Strandvegi 51. Grunnflötur byggingarinnar stækkar er nú 334,6 m2 og í 514,6 m2. Heildar byggingarmagn var 514,6 m2 og verður 1.285 m2.

Þakform er með breyttum hætti, var mænisþak en verður nú einhalla þak. Skilgreind er hámarks vegghæð 3 hæðar 9,5 m. Fjórða hæð skal vera inndregin um að lágmarki um 1,2 m og verður hámarkshæð 4 hæðar 14,0 m en var 14,5 m.

Hámarksfjöldi íbúða verður 8 íbúðir. Krafa um atvinnustarfsemi á jarðhæð helst óbreytt en á hluta hæðarinnar er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir 4 bíla. Samkomulag hefur verið gert um almenna notkun af bílastæðum við Strandveg 50 utan dagtíma.

Samkvæmt deiliskipulagi skal ytra byrði hönnunar hússins skal vera samkvæmt innsendum teikningum. Tillögu teikningar má sjá á vefmyndbandi https://youtu.be/pmbg1qbnJ1c).

Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja Kirkjuvegi 50, frá og með 19. júlí til 30. ágúst 2023 og má einnig finna í skipulagsgátt sveitafélagsins.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 30. ágúst 2023 í afgreiðslu Ráðhúss eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is