Fara í efni
08.05.2008 Fréttir

Auglýsing um skipulag - Vestmannaeyjar

Bæjarstjórn Vestmannaeyja auglýsir skv. 2 mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014. Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við tillöguna.Tillagan gerir ráð
Deildu

Bæjarstjórn Vestmannaeyja auglýsir skv. 2 mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014. Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Tillagan gerir ráð fyrir að nýjar vatnsleiðslur og rafstrengir komi á land í Gjábakkafjöru. Frá Gjábakkafjöru eru lagnir grafnar í jörðu að hafti milli Gjábakkafjöru og Skansfjöru, haft verður rofið og er lagnaleið þar í gegn að núverandi landtökustað í Skansfjöru. Að öðru leyti verða framkvæmdir samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Tillagan verður til sýnis hjá umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tangagötu 1, 2. hæð, í safnahúsi Vestmannaeyja við Ráðhúströð og á eftirfarandi vefsíðum www.vestmannaeyjar.is, www.alta.is, frá og með miðvikudeginum 7. maí 2008.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. maí 2008.

Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna innan tilgreinds frests telst samþykkur henni.

Umhverfisskýrsla
Kort

Vestmannaeyjum, 7. maí 2008
Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar