Þetta er samstarfsverkefni Vestmannaeyjabæjar og Hamarsskóla. Myndirnar eru einstaklega jólalegar og þrjár þeirra voru dregnar út til að prýða jólagjafakort Vestmannaeyjabæjar til starfsmanna jólin 2026.
Allar myndir nemenda verða til sýnis í Safnahúsinu en sýningin opnar föstudaginn 27. nóvember og verður Safnahúsið með lengri opnun þann dag til kl. 18:00.
Þá verður einnig kveikt á jólatrénu á Stakkagerðistúni þann dag, nánari dagskrá má finna hér.
Það eru nemendurnir Mía Mekkin Valgeirsdóttir, Röskva Hjaltalín í Dali og Stormur Héðinn Tindsson sem myndskreyta jólagjafakort Vestmannaeyjabæjar í ár.
Safnahúsið er opið alla virka daga frá 10-17 og laugardaga frá 12-15. Hvetjum alla til þess að líta við á þessa skemmtilegu sýningu.


