Ýmislegt verður um að vera í bænum af þessu tilefni.
Dagskrá
• Lúðrasveit Vestmannaeyja flytur nokkur lög
• Eyþór Harðarson, varaforseti bæjarstjórnar segir nokkur orð.
• Litlu lærisveinar undir stjórn Kitty Kovács syngja
• Guðmundur Örn prestur segir nokkur orð.
Eyþór Harðarson mun svo kalla Lenu Agnieszka til sín til þess að kveikja á trénu. Þegar ljósin hafa verið tendruð munu jólasveinarnir koma upp á svið og syngja og sprella með krökkunum. Í kjölfarið verður nammi jólasveinanna afhent í öðrum skúrnum þar sem sögupersónurnar Grýla og Leiðindaskjóða úr leikritinu "Grýla gerir uppreisn" gefa nammið. Í lokin munu jólasveinarnir bjóða uppá myndatökur og spjall með krökkunum .
Meistaraflokkur kvenna í fótbolta verður með til sölu kaffi, súkkulaði og smákökur
Sú skemmtilega hefð hefur skapast að 1. bekkur GRV hefur teiknað jólamyndir á gjafakort Vestmannaeyjabæjar. Vegna þessa mun bókasafnið standa fyrir sýningu á þeim myndum og er hún opin til 18:00 nk. föstudag.
Lengri opnun er í verslunum bæjarins tilefni af svörtum föstudags og er opið til kl 18:00.